Fara beint í efnið
Stafræn heilsa Forsíða
Stafræn heilsa Forsíða

Stafræn heilsa

Hugmyndahraðhlaup í heilsutækni

13. mars 2026

Dagana 13. og 14. mars fór fram hugmyndahraðhlaup í heilsutækni í samstarfi við KLAK

Stafræn heilsa tók þátt í hugmyndahraðhlaupi í heilsutækni í samstarfi við KLAK sem haldið var í Grósku dagana 13. og 14. mars.

Frumkvöðlum, nemum, fagfólki og öllum áhugasömum var boðið að taka þátt í hugmyndahraðhlaupi þar sem nýsköpun í heilsutækni var í forgrunni. Markmiðið er að móta lausnir sem raunverulega geta bætt þjónustu, aðgengi og upplifun fólks í heilbrigðiskerfinu.

Þetta er í annað sinn sem hugmyndahraðhlaupið fer fram og í ár var metfjöldi þátttakenda.

Marta Jóns Hjördísardóttir, umboðsmaður sjúklinga á Landspítalanum, hóf hugmyndahraðhlaupið með því að segja frá þeim fjölmörgu áskorunum sem geta staðið frammi fyrir sjúklingum og aðstandendum þeirra.

Fjórar áskoranir voru lagðar fyrir þátttakendur en þær komu frá Heilbrigðisráðuneytinu, Landspítala, Stafrænu Íslandi ásamt opnum flokki.

Áskorun Landspítala: Hvernig getum við gert það einfaldara fyrir eldra fólk, aðstandendur þeirra og fagfólk að finna, sækja um og samræma þá þjónustu sem þarf þegar þjónustuþörf eykst?

Áskorun Heilbrigðisráðuneytisins: Hvernig getum við nýtt gögn, tækni og nýjar nálganir til að bæta tímabókanir með áherslu á mat og forgangsröðun þjónustu fyrir almenning?

Áskorun Stafræns Íslands: Stafrænt Ísland óskar eftir notendalausn til að styðja við einstaklinga í skilgreindri meðferð þannig að þeir geti verið virkir þátttakendur í sinni meðferð og eigi auðvelt með að leita sér viðeigandi aðstoðar.

Opni flokkurinn: Við leitum að skapandi og framsæknum heilsutæknilausnum sem geta bætt aðgengi, skilvirkni og gæði heilbrigðisþjónustu fyrir öll.

Stafræn heilsa

Hafa samband

Sími: 545 8700
Netfang: sh@hrn.is



Stafræn heilsa er hluti af heilbrigðisráðuneytinu