HIMSS 2026
3. júní 2026
Dagana 18.–21. maí sótti Stafræn heilsa hina árlegu HIMSS-ráðstefnu í Kaupmannahöfn. HIMSS eru alþjóðleg samtök sem hafa lengi verið leiðandi í miðlun upplýsinga um stafræna framþróun, gervigreind og þróun heilbrigðisþjónustu.

Mönnun var rauður þráður
Vaxandi þörf fyrir starfsfólk kom ítrekað upp, með meiri þunga en áður. Stafvæðing og gervigreind voru oft nefnd sem svör, þótt minna færi fyrir áþreifanlegum lausnum. Athygli vakti að sumar lausnir, til dæmis talgreining, skila minni mælanlegum ávinningi en vænst var en virðast engu að síður draga úr kulnun og álagi. Þá var sterkt ákall um einföldun á laga- og reglugerðarumhverfi sem tefur innleiðingar stafrænna lausna.
Einnig var bent á mikilvægi þess að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í nýsköpun og stafvæðingu. Margar innleiðingar lenda í vandræðum þegar starfsfólk er óundirbúið og skilur ekki alltaf ferlið eða ávinninginn sem að lokum hlýst af verkefninu.
Gervigreind kallar á breytt hugarfar
Líflegustu umræðurnar snerust um grundvallarmun á rökleiðslu: heilbrigðisvísindin byggja á orsök og afleiðingu en gervigreindin á líkindafræði. Strax í dag skiptir máli að starfsfólk skilji þennan mun þegar það metur niðurstöður gervigreindartóla í klínísku samhengi.
Mikilvæg tengsl
Við hittum fulltrúa Digital Health Denmark en þar er um nýja systurstofnun að ræða sem mikilvægt er að eiga í góðum tengslum við ásamt öðrum systurstofnunum á Norðurlöndunum og þannig færa lærdóm þeirra yfir á íslenska heilbrigðisþjónustu.
Að lokum var Rigshospitalet heimsóttur og kynntu þau fyrir okkur sína nálgun á nýsköpun sem var áhugaverð og klárlega eitthvað sem má nýta hér heima.
