Fara beint í efnið
Skatturinn Forsíða
Skatturinn Forsíða

Skatturinn

Gagnkvæmt samkomulag vegna tvísköttunar

Ísland hefur gert 41 tvísköttunarsamning við 46 ríki og hafa þeir allir ákvæði um framkvæmd gagnkvæms samkomulags. Að auki hefur Ísland gert 36 upplýsingaskiptasamninga sem eru með sambærilegu ákvæði.

Við gerð tvísköttunar- og upplýsingaskiptasamninga hefur Ísland fylgt samningsfyrirmynd OECD um framkvæmd gagnkvæms samkomulags (e. Mutual Agreement Procedure / MAP). Ákvæðið er í 25. gr. samningsfyrirmyndarinnar og hafa íslensk stjórnvöld ekki gert athugasemdir eða fyrirvara við ákvæðið.

Í 25. gr. samningsfyrirmyndar OECD er kveðið á um að ef skattaðili telur að ráðstafanir sem gerðar eru af öðru hvoru samningsríkinu (þeim ríkjum sem aðild eiga að viðkomandi samningi) leiði eða muni leiða til skattlagningar að því er hann varðar, sem ekki er í samræmi við ákvæði samningsins, getur hann lagt málið fyrir bært stjórnvald í því samningsríki þar sem hann er heimilisfastur. Úrræðið raskar ekki rétti hans til að færa sér í nyt þau réttarúrræði sem lög þessara ríkja kveða á um. Bært stjórnvald samkvæmt framansögðu er ríkisskattstjóri sé heimilisfesti skattaðila á Íslandi.

Tímafrestur til að leggja fram beiðni er mismunandi eftir samningum en í flestum er hann þrjú ár frá því tímamarki sem skattaðila mátti vera ljóst að hann sætti tvískattlagningu. Dæmi um annan tímafrest er fimm ára frestur í samningi milli Norðurlandanna. Það er því mikilvægt að skattaðili athugi hver tímamörk viðeigandi samnings eru áður en óskað er eftir gagnkvæmu samkomulagi. Beiðni sem lögð er fram eftir lok tímafrests er hafnað án frekari fyrirvara.

Sé beiðni lögð fram um að ríki geri með sér gagnkvæmt samkomulag er það hlutverk stjórnvalda að komast að samkomulagi, án beinnar aðildar skattaðilans. Í beiðni ber að veita allar nauðsynlegar upplýsingar og leggja fram viðeigandi gögn. Tekið skal fram að stjórnvöld eru ekki skyldug til að ná gagnkvæmu samkomulagi, stundum getur verið samkomulag um að vera ósammála. Eina skyldan er að hafa leitast við að komast að samkomulagi. Ýmislegt getur komið í veg fyrir að samkomulag náist, t.d. landslög annars hvors ríkisins og úrskurða- og dómaframkvæmd.

Stefnt er að því að leysa úr öllum beiðnum eins fljótt og hægt er. Hafa skal þó í huga að engin tvö mál eru eins og málshraði getur því verið mjög misjafn. Engu að síður er það opinbert markmið innan OECD að afgreiðslutími gagnkvæmra samkomulaga sé að meðaltali ekki lengri en 24 mánuðir. Ríkisskattstjóri leitast ávallt við að komast að gagnkvæmu samkomulagi eins fljótt og kostur er og við það miðað að halda þá alþjóðlegu tímafresti sem komist hefur verið að samkomulagi um.