Fara beint í efnið
Skatturinn Forsíða
Skatturinn Forsíða

Skatturinn

Skatthlutfall, skattþrep og persónuafsláttur ársins 2026

22. desember 2025

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið frá sér tilkynningu um skattbreytingar á árinu 2026. Þar kemur meðal annars fram hvert staðgreiðsluhlutfall næsta árs verður, sem og fjárhæð persónuafsláttar og hvar skattþrepamörkin munu liggja.

Skatthlutfall einstaklinga í staðgreiðslu 2026

Skattþrep 1

: Af tekjum 0 – 498.122 kr.

31,49%

Skattþrep 2:

Af tekjum 498.123 - 1.398.450 kr.

37,99%

Skattþrep 3:

Af tekjum yfir 1.398.450 kr.

46,29%

Skatthlutfall barna (fædd 2011 eða síðar) af tekjum umfram 300.000 kr. á ári

6%

Persónuafsláttur á mánuði

72.492 kr.

Persónuafsláttur á ári

869.898 kr.

Vefur Skattsins verður uppfærður til samræmis.

Lesa tilkynningu Fjármála- og efnahagsráðuneytisins á vef Stjórnarráðsins