Fara beint í efnið
Skatturinn Forsíða
Skatturinn Forsíða

Skatturinn

Nýtt greiðslufyrirkomulag tilkynningar- og skráningargjalda til Fyrirtækjaskrár

11. september 2026

Frá og með mánudeginum 14. september verður breyting á greiðslufyrirkomulagi skráningar- og tilkynningargjalda til Fyrirtækjaskrár.

Skráningarferli verður eftirleiðis svona:
  1. Tilkynning send á fyrirtaekjaskra@skatturinn.is

  2. Á eyðublaði er tilgreind kennitala þess sem mun greiða kröfuna

  3. Krafa stofnuð í heimabanka

  4. Þegar krafa er greidd fara tilkynningar í afgreiðsluferli

Greiðsluseðill mun vera aðgengilegur inn á Ísland.is sem og greiðslukvittun þegar krafa hefur verið greidd.

Hætt verður að taka við millifærslum samkvæmt gamla verklaginu.

Fagaðilar og aðrir sem senda sérútbúnar tilkynningar í tölvupósti skulu óska eftir því í sama pósti á hvaða kennitölu krafa skuli send.