Upplýsingaöryggisstefna
Lyfjastofnun fylgir eftirfarandi upplýsingaöryggisstefnu.
Stefnan tekur til vinnslu, meðhöndlunar og vistunar allra upplýsinga og gagna í eigu eða vörslu stofnunarinnar. Stefnan tekur jafnframt til húsnæðis og búnaðar sem Lyfjastofnun á eða hefur umsjón með. Hún tekur mið af lögum og reglugerðum um persónuvernd, af upplýsingaöryggisstjórnunarstaðlinum ISO 27001 og er einnig í samræmi við reglur Persónuverndar nr. 299/2001 um öryggi persónuupplýsinga.
Stefna Lyfjastofnunar er að:
Varðveita og hámarka öryggi upplýsinga m.t.t. leyndar, réttleika og tiltækileika
Greina og fara eftir kröfum, lögum og reglugerðum sem eiga við um stjórnun upplýsingaöryggis
Vanda til við skráningu upplýsinga og uppfæra eins og þörf er á
Tryggja greiðan aðgang að upplýsingum og upplýsingakerfum til þeirra sem hafa rétt og þörf á
Vernda upplýsingar og upplýsingakerfi gegn óheimilum aðgangi
Stuðla að virkri öryggisvitund starfsfólks með fræðslu og þjálfun
Vinna stöðugt að umbótum
Tryggja stuðning stjórnenda með virkri rýni stjórnenda og setningu markmiða
Beita áhættugrundaðri hugsun
Tryggja virkt innra eftirlit
Upplýsingaöryggisstefnan er bindandi fyrir starfsfólk Lyfjastofnunar.
Gildistaka og endurskoðun
Stefnan er sett af forstjóra Lyfjastofnunar að fenginni tillögu frá gæða- og öryggisstjóra stofnunarinnar og samþykki framkvæmdaráðs. Stefnan gildir frá og með staðfestingu forstjóra sem kemur fram með samþykktarferli skjala stjórnunarkerfis.
