Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Maífundur PRAC, lyfjaöryggisnefndar EMA

18. júní 2024

Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu um eftirlit með ávinningi og áhættu lyfja (PRAC) fundaði dagana 13.-16. maí sl.

Meðal þess sem sérfræðinganefndin fjallaði um voru niðurstöður stórrar lýðgrundaðrar rannsóknar ( e. population-based study ), sem beindist að því að meta hvort fólk sem hafði verið útsett fyrir 17-hýdroxýprógesteron kapróat í móðurkviði ætti frekar á hættu að fá krabbamein en aðrir.

Lyfið hefur verið notað til að koma í veg fyrir fósturlát og fyrirburafæðingar, en einnig til að meðhöndla frjósemisvanda og ýmsa sjúkdóma í æxlunarfærum kvenna.

Niðurstaðan úr yfirferð PRAC var sú, að hugsanleg áhætta á krabbameini sé til staðar hjá þeim sem hafa verið útsettir fyrir lyfinu í móðurkviði, þótt lítill fjöldi tilfella og skortur á upplýsingum um aðra áhættuþætti krabbameins, standi í vegi fyrir að hægt sé að staðfesta þessa áhættu.

Virkni lyfsins var einnig skoðuð, m.a. var metin rannsókn þar sem kannaður var árangur af því að koma í veg fyrir fyrirburafæðingar. Í ljós kom að lyfið skilaði engu betri árangri en lyfleysa.

Í ljósi þessa mælir nefndin með því að markaðsleyfi lyfsins á Evrópska efnahagssvæðinu verði fellt niður. Annars konar meðferð við umræddum vanda stendur til boða.

Lyfjastofnun er ekki kunnugt um að lyfið hafi verið í notkun á Íslandi, a.m.k. ekki á síðari árum.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00