Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Bréf til heilbrigðisstarfsmanna (DHPC) vegna Litfulo

14. ágúst 2026

Nýjar upplýsingar um Litfulo ætlaðar heilbrigðisstarfsfólki

Markaðsleyfishafi Litfulo (ritlecitinib) hefur í samráði við Lyfjastofnun Evrópu (EMA) og Lyfjastofnun sent bréf til heilbrigðisstarfsmanna þar sem fram kemur eftirfarandi.

Á grundvelli nýjustu upplýsinga um áhættu sem fylgir JAK-hemlum, þ.e.alvarleg hjarta- og æðaatvik (major adverse cardiovascular events (MACE)),illkynja æxli, alvarlegar sýkingar og blóðsegarek í bláæðum (venousthromboembolism (VTE)) á hún einnig við um Litfulo við samþykktaráðlagða notkun þess.

  • Litfulo á eingöngu að nota ef engir aðrir hentugir meðferðarkostir erutiltækir hjá sjúklingum:o 65 ára og eldri;o með sögu um hjarta- og æðasjúkdóm vegna æðakölkunar eða aðraáhættuþætti tengda hjarta og æðum (t.d. sjúklingar sem reykja eðahafa áður reykt til langs tíma);o með áhættuþætti tengda illkynja æxli (t.d. núverandi illkynja æxli eðasaga um illkynja æxli).

  • Gæta skal varúðar við notkun Litfulo hjá sjúklingum með aðra áhættuþættitengda blóðsegareki í bláæðum en þá sem taldir eru upp hér að framan.

  • Regluleg húðskoðun er ráðlögð hjá öllum sjúklingum.

Tilkynning aukaverkana

Heilbrigðisstarfsmenn eru minntir á skyldur sínar til að tilkynna allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfjunum. Hægt er að tilkynna til Lyfjastofnunar, eða í gegnum eyðublað (Tilkynning um aukaverkun) sem er að finna í lyfjaávísanakerfinu Sögu.

Tengiliðir

Vinsamlegast hafið samband við umboðsaðila á Íslandi ef spurningar vakna eða frekari upplýsinga er óskað. Sjá nánari upplýsingar um tengiliði í DHPC bréfinu.

Frekari upplýsingar er að finna í DHPC bréfi sem dreift hefur verið til heilbrigðisstarfsfólks.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00