Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Bréf til heilbrigðisstarfsmanna (DHPC) – Leqvio (inclisiran)

21. desember 2023

Mikilvægar upplýsingar um Leqvio (inclisiran) stungulyf, notkun fyrir inndælingu

Í samráði við Lyfjastofnun Evrópu og Lyfjastofnun vill markaðsleyfishafi Leqvio, Novartis Europharm Limited, koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri:

  • Novartis hefur fengið nokkrar kvartanir þess efnis að erfitt sé að hreyfa sprautustimpilinn sem veldur því að ekki er hægt að sprauta Leqvio (inclisiran) 284 mg stungulyfi, lausn í áfylltri sprautu. Þetta vandamál hefur komið fram innan Evrópu en er sjaldgæft (~ 0,01%).

  • Til að tryggja að heilbrigðisstarfsmenn geti notað Leqvio á ákjósanlegan hátt fyrir sjúklinga á meðan verið er að finna tæknilegar lausnir til að ráða bót á vandamálinu vill Novartis koma mikilvægum upplýsingum á framfæri áður en inndæling Leqvio fer fram:

  • Ekki fjarlægja lokið/hettuna af nálinni fyrr en komið er að inndælingu þar sem lyfið getur í mjögsjaldgæfum tilfellum þornað í nálinni og stíflað hana ef lokið er fjarlægt of snemma af nálinni.

  • Ef ekki er hægt að þrýsta stimplinum niður eftir að nálinni er stungið inn skal nota nýja áfylltasprautu. Novartis útvegar nýjar sprautur í staðinn fyrir gallaðar Leqvio sprautur.

  • Yfirfarnar upplýsingar staðfesta að engin klínískt marktæk áhætta er fyrir hendi hvað varðar öryggi sjúklinga.

Nánari upplýsingar er að finna í bréfinu.

Yfirlit yfir bréf til heilbrigðisstarfsmanna

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00