Þessi frétt er meira en árs gömul
Bréf til heilbrigðisstarfsmanna (DHPC) – Integrilin (eptifibatíð)
6. nóvember 2023
Framleiðslu Integrilin hætt

Í samráði við Lyfjastofnun Evrópu og Lyfjastofnun vill GlaxoSmithKline (Ireland) Limited upplýsa um eftirfarandi:
GlaxoSmithKline (GSK) mun hætta framleiðslu á Integrilin tafarlaust. Ákvörðunin tengist birgðavandamálum í sambandi við eptifibatíð sem er virka efnið í Integrilin.
Hætt verður að framleiða bæði lyfjaform Integrilin [2mg/ml stungulyf, lausn og 0,75mg/ml innrennslislyf, lausn] sem eru fáanleg innan evrópska efnahagssvæðisins. Þetta þýðir að Integrilin verður tekið af markaði í Evrópu.
Þar sem framleiðslu Integrilin verður hætt skulu heilbrigðisstarfsmenn; Ekki hefja meðferð með Integrilin hjá nýjum sjúklingum ef ekki er til nægilegt magn af hettuglösum til að ljúka meðferðinni (hleðsluskammtur, fylgt eftir með innrennsli í allt að 72 klukkustundir).
Íhuga ávísun annars lyfjaforms eptifibatíðs, annars glýkóprótein IIb/IIIa viðtakahemils (t.d. tirofiban) eða annarra segavarnarlyfja sem henta, eins og við á klínískt.
Nánari upplýsingar er að finnaí bréfinu.
