Þessi frétt er meira en árs gömul
Bréf til heilbrigðisstarfsmanna (DHPC) – Abecma, Breyanzi, Carvykti, Kymriah, Tecartus og Yescarta
22. júlí 2024
Hætta á síðkomnum illkynja sjúkdómum af T-frumu uppruna

Í samráði við Lyfjastofnun Evrópu og Lyfjastofnun koma Bristol-Myers Squibb Pharma EEIG, Janssen-Cilag International NV, Kite Pharma EU B.V. og Novartis Europharm Limited eftirfarandi upplýsingum á framfæri um lyfin
Tilkynnt hefur verið um síðkomna illkynja sjúkdóma af T-frumu uppruna, m.a. krabbamein sem eru jákvæð fyrir tjáningu blendingsviðtaka fyrir mótefnavaka (chimeric antigen receptor (CAR)-positive), vikum og allt að nokkrum árum eftir meðhöndlun krabbameins í blóði með CAR T-frumumeðferð sem beinist gegn BCMA eða CD19.
Hafa skal eftirlit með sjúklingum ævilangt vegna síðkominna illkynja sjúkdóma.
Nánari upplýsingar eru að finna í bréfinu
Mikilvægt að tilkynna aukaverkanir
Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að tilkynna allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist notkun CAR T-frumulyfja til Lyfjastofnunar: Tilkynna aukaverkun lyfs - Lyfjastofnun eða í gegnum eyðublað (Tilkynning um aukaverkun) sem er að finna í Sögu.
Vinsamlega tilkynnið heiti lyfs og upplýsingar um lotu.
Viðtakendur bréfsins eru: Krabbameinslæknar, blóðsjúkdómalæknar og sérfræðingar í blóð- og krabbameinslækningum barna. Viðtakendur eru hvattir til að láta aðra heilbrigðisstarfsmenn vita um efni bréfsins eftir því sem við á.
Markaðsleyfishafi /Fulltrúi markaðsleyfishafa | Heiti lyfs | Sími /Tölvupóstfang |
Bristol-Myers Squibb Pharma EEIG /Vistor hf. | AbecmaBreyanzi | 535 7000solveig@vistor.is |
Janssen-Cilag International NV /Janssen-Cilag AB c/o Vistor hf. | Carvykti | 535 7000janssen@vistor.is |
Kite Pharma EU B.V. /Gilead Sciences Denmark ApS | TecartusYescarta | +46 8 5057 1849nordics.medinfo@gilead.com |
Novartis Europharm Limited /Vistor hf. | Kymriah | 535 7000novartis@vistor.is |
