Aukaverkanatilkynningar á fyrri hluta árs 2026
10. september 2026
Tilkynningum um aukaverkanir fækkaði lítillega á þessu tímabili samanborið við síðari hluta árs 2025. Minnt er á að heilbrigðisstarfsfólki er skylt samkvæmt lyfjalögum að tilkynna grun um aukaverkun

Tilkynningar vegna gruns um aukaverkanir lyfja á fyrri hluta ársins 2026 voru ívið færri en mánuðina sex þar á undan, 166 tilkynningar samanborið við 172 fá júlí til desember 2025.
Nýr gagnagrunnur
Í desember sl. var tekinn í notkun nýr gagnagrunnur til að taka á móti og vinna aukaverkanatilkynningar. Hann gerir kleift að flokka og greina tilkynningar með nokkuð nákvæmari hætti en sá eldri, sem gæti skipt máli ef bornar eru saman nýjar tölur við tölur frá fyrri tíð.
Fjöldi tilkynninga á fyrri hluta árs 2026
Af þeim 166 tilkynningum sem Lyfjastofnun bárust frá janúar til og með júní 2026 töldust 32 vera alvarlegar, 134 ekki alvarlegar. – Febrúarmánuður sýnir nokkuð frávik í fjölda tilkynninga, sérstaklega hvað varðar þær sem ekki teljast alvarlegar. Þetta skýrist af því að Eitrunarmiðstöð Landspítala sendi í einu lagi tilkynningar vegna atvika sem komið höfðu inn á þeirra borð og orðið höfðu yfir nokkurn tíma.
Minna má á að tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir lyfja eru sérstaklega mikilvægar, þótt allar tilkynningar um aukaverkanir skipti máli. Þær veita mikilvægar upplýsingar sem leitt geta til þess að öryggi og verkun lyfs verði endurmetin.
Þau sem tilkynna
Lyfjafræðingar eru þeir sem flestar tilkynningar senda á þessu hálfs árs tímabili, eða 109. Notendur sendu 32 tilkynningar, læknar 15 tilkynningar og heilbrigðisstarfsfólk annað en læknar og lyfjafræðingar 9.
Minnt skal á að heilbrigðisstarfsfólki sem hefur grun um að skjólstæðingur hafi fengið alvarlega, nýja eða óvænta aukaverkun af notkun lyfs, er skylt að tilkynna það til Lyfjastofnunar. Þessi skylda er bundin í lög sem tóku gildi í ársbyrjun 2021, hana er að finna í 63. gr. lyfjalaga.
Tilkynnandi | Janúar | Febrúar | Mars | Apríl | Maí | Júní |
Lyfjafræðingur | 3 | 51 | 26 | 13 | 8 | 8 |
Læknir | 4 | 2 | 2 | 3 | 2 | 2 |
Annað heilbrigðis- | 1 | 0 | 1 | 1 | 4 | 2 |
Lögfræðingur | 0 | 0 | 0 | 1 | 0 | 0 |
Notandi | 4 | 2 | 4 | 3 | 8 | 11 |
Samtals | 12 | 55 | 33 | 21 | 22 | 23 |
Rétt er að taka fram að um tilkynningar vegna gruns um aukaverkun er að ræða. Það merkir að tilkynnt tilvik hafa átt sér stað í kjölfar lyfjanotkunar, en segir ekki til um hvort orsakasamhengi sé milli tilvikanna og lyfjanotkunarinnar.
Fjölda aukaverkanatilkynninga ber alltaf að skoða í samhengi við notkun lyfs eða bóluefnis.
Mikilvægt að tilkynna um aukaverkun lyfs
Aukaverkanatilkynningar skipta miklu máli því með þeim berast mikilvægar upplýsingar um áhrif og verkun lyfs eftir að það fer í almenna notkun. T.d. upplýsingar um aukaverkanir sem hugsanlega komu ekki fram í klínískum rannsóknum en gera vart við sig í stærra þýði. Því er rétt að hvetja almenning jafnt sem heilbrigðisstarfsfólk til að senda upplýsingar um slík tilvik til Lyfjastofnunar.
Allir geta tilkynnt grun um aukaverkun lyfs
Hægt er að tilkynna rafrænt í gegnum gátt á vef Lyfjastofnunar. Auk þess getur heilbrigðisstarfsfólk tilkynnt í gegnum Sögukerfið á þar til gerðu eyðublaði.
