Þessi frétt er meira en árs gömul
Allar klínískar lyfjarannsóknir í CTIS fyrir lok janúar 2025
23. maí 2024
Þriggja ára aðlögunartímabili vegna yfirfærslu gagna yfir í samevrópsku gáttina CTIS lýkur 30. janúar 2025

Allar yfirstandandi klínískar rannsóknir þarf að flytja í samevrópsku gáttina CTIS fyrir 30. janúar 2025. Þar með lýkur þriggja ára aðlögunartímabilisem hófst þegar reglugerð um klínískar prófanir (CTR)tók gildi.Umsækjendur klínískra rannsókna sem búist er við að haldi áfram eftir 30. janúar 2025 þurfa að huga að þeim tíma sem getur tekið aðildarríkin að ljúka leyfisferlinu, en það getur orðið allt að þrír mánuðir.Leiðbeiningarum yfirfærslu gagna standa umsækjendum til boða, og einnig viðbótar stuðningsefni. Umsækjendur geta einnig nýtt sér sérstaka þjálfun og upplýsingaviðburði sem hafa verið haldnir en upptökur af þeim eru birtar á vef EMA, sjá tengla hér fyrir neðan.
Þá eru umsækjendur eru hvattir til að gerast áskrifendurað fréttabréfi um klínískar rannsóknirtil að fá nýjustu upplýsingar um fræðslu og viðburði sem tengjast málefninu.
Ef upp koma tæknileg vandamál í CTIS, vinsamlegast hafið samband við EMA ServiceNow.
Fyrirspurnir eða ósk um leiðbeiningafund má senda á kliniskar.rannsoknir@lyfjastofnun.is
Námskeið og fyrirlestrar
Stuttur CTIS fyrirlestur 21.6.2023
Þjálfun fyrir bakhjarla sem ekki koma úr lyfjaiðnaðinum 9.2.2024
Stuttur CTIS fyrirlestur 29.2.2024
Gagnlegt safn þjálfunar fyrir nýja notendur CTIS
CTIS: how to get started and how to transition a trial
CTIS þjálfunarefni fyrir yfirfærsluferli (Transitional trials):
Í Module 23 – CTIS online training programmeeru leiðbeiningar um hvernig skal skila rannsóknum í yfirfærsluferli inní CTIS. Einnig hægt að sjá yfirlit í Quick Guide for Sponsors.
Leiðbeiningar um tilfærslu klínískra rannsókna
Guidance for the transition of clinical trials
Leiðarvísir gefinn út af Framkvæmdastjórn ESB
Aðlögunartímabil og yfirfærsla gagna í CTIS
Kafli 5 í CTIS Sponsor Handbook geymir yfirlit yfir aðlögunartímabilið, tímalínur mats og upplýsingar um hvernig skal útbúa og halda utan um rannsóknir sem fluttar eru yfir í CTIS.
Almennt um aðlögunartímabil og yfirfærslu gagna í CTIS
Leiðarvísir fyrir bakhjarla fjölþjóðlegra rannsókna
Best practice guideog annexfyrir umsækjendur fjölþjóða rannsókna sem þarf að flytja yfir í CITS, samþykkt af Clinical Trials Coordination Group (CTCG).
Leiðarvísirinn miðar að því að styðja umsækjendur sem þurfa að flytja fjölþjóðarannsóknir með aðferðarlýsingu IMPD eða IB þar sem ekki er samræmi milli aðildalanda. Viðaukinn býður upp á sniðmát með upplýsingum sem ættu að koma fram í fylgibréfi umsóknar.
Innleiðing reglugerðar um klínískar rannsóknir
Leiðbeiningar um persónuvernd, yfirfærslu eldri rannsókna o.fl.
