Undirbúningur fæðingar
Markmið námskeiðsins er að efla sjálfsöryggi og bjargráð verðandi foreldra í fæðingu.
Fjallað verður um
Hvernig má styrkja jákvætt hugarfar gagnvart fæðingunni og foreldrahlutverkinu
Hvernig má gera foreldra að virkum þátttakendum í fæðingunni.
hvernig hægt er að vita að fæðing sé að fara af stað og leiðir til að takast á við aðdraganda fæðingar.
þætti sem geta haft jákvæð og neikvæð áhrif á fæðingarferlið.
ýmis ráð til að auðvelda fæðingu og takast á við fæðingarhríðir.
inngrip í fæðingu og fæðingu með keisaraskurði.
nýfædda barnið, fyrstu dagana eftir fæðingu, tengslamyndun og aðlögun að breyttu hlutverki.
Heppilegur tími til að hefja námskeið er eftir 28. viku. Mikilvægt er að skuldbinda sig til að mæta í báða tímana.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er fjarnámskeið og fer fram á teams.
Hvert námskeið er tvö skipti, tvær klukkustundir í senn.
Þau sem skrá sig fá sendan hlekk degi fyrir námskeiðið.
Kostnaður
Námskeiðið er gjaldfrjálst fyrir verðandi foreldra
Nánari upplýsingar
Leiðbeinandi á námskeiðinu: er Sigrún Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir.
Hægt að fá frekari upplýsingar með því að senda tölvupóst á heilsubru@heilsugaeslan.is.
Næstu námskeið
Hefst 23. júní 2026
13:30 til 15:30
Fjarnámskeið
