EDAM námskeið - Fyrir einhverfa unglinga
Námskeið fyrir ungmenni á einhverfurófi með áherslu á það sem unglingurinn hefur sjálfur stjórn á. Skipt er í tvo hópa eftir aldri.
Yngri hópur: 13 til 16 ára.
Eldri hópur: 17 ára og eldri
Tilgangur námskeiðsins
Kenna unglingum færniþætti byggða á DAM (díalektískri atferlismeðferð) til að hjálpa þeim að vera sáttir við eigin hugsanir og hegðun.
Farið verður yfir
tilfinninga- og orkustjórn
núvitund
streituþol
að finna milliveginn
aukinn sjálfsskilningur
fleira
Fyrirkomulag
Yngri hópur:
Hvert námskeið er samtals 18 klukkustundir, tólf skipti.
Hver tími er 90 mínútur. Hópurinn hittist tvisvar í viku, samtals 12 sinnum
Eldri hópur:
Hvert námskeið er samtals 15 klukkustundir, tíu skipti.
Hver tími er 90 mínútur. Hópurinn hittist tvisvar í viku, samtals 10 sinnum
Lögð er áhersla á virka þátttöku og heimaverkefni.
Unglingar skulu mæta í alla tímanna þar sem hver áfangi byggir á þeim fyrri.
Foreldrar mæta í 2 til 3 tíma.
Einstaklingsráðgjöf er í boði ef þörf krefur.
Unglingar fylla út matslista í upphafi og lok námskeiðs.
Námskeiðið er haldið í Geðheilsumiðstöð barna, Vegmúla 3, 108 Reykjavík.
Námskeiðið er gjaldfrjálst
Leiðbeinendur eru 2 til 3 fagaðilar, með mikla reynslu af vinnu með einhverfum unglingum og foreldrum þeirra.
Skráning á næstu námskeið
Hefst 13. apríl 2026
15:00 til 16:30
Vegmúli 3, 108 Reykjavík
Hefst 14. apríl 2026
15:00 til 16:30
Vegmúli 3, 108 Reykjavík
