Þyngdarstjórnunarkerfið
Markmið námskeiðsins er að hjálpa þátttakendum að byggja upp heilbrigða daglega lífshætti sem styðja við eðlilega þyngdarstjórn líkamans.
Stefnt er að því að í lok námskeiðsins hafi hver þátttakandi í höndum bjargráð og þekkingu til að setja sér raunhæf markmið.
Námskeiðið er opið öllum kynjum, 18 ára og eldri.
Efni námskeiðsins
Námskeiðið er fjögur skipti og skiptist í:
1. Þyngdarstjórnunarkerfi líkamans
Fjallað er um hvernig daglegar venjur, mataræði, hreyfing, svefn og andleg líðan vinna saman að heilbrigðum grunni.
Hvernig þyngdarstjórnunarkerfi líkamans vinna.
Hvernig er hægt að koma betra jafnvægi á mataræði, hreyfingu, svefn og andlega líðan
Hvenær verður ofþyngd að sjúkdómnum offitu?
Leiðbeinendur: Íris Dröfn Björnsdóttir og Sigrún Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingar.
2. Andleg líðan og svefn
Tengsl andlegrar heilsu og þyngdarstjórnunar.
Bjargráð: Aðferðir til að takast á við streitu og erfiðar tilfinningar.
Svefn: Áhrif svefns á líkamann og þyngdarstjórnun, helstu svefnraskanir og ráð við svefnleysi.
Leiðbeinandi: Haraldur Sigurður Þorsteinsson, sálfræðingur.
3. Næring og hreyfing
Hagnýt ráð um fæðuval og hreyfingu við hæfi.
Helstu áhrifaþættir og ráðleggingar varðandi fæðuval og hreyfingu.
Rýni á eigin mataræði og mat á hvað gæti stutt við heilsusamlegar fæðuvenjur .
Leiðir að hreyfingu við hæfi.
Leiðbeinendur: Edda Ýr Guðmundsdóttir og Óla Kallý Magnúsdóttir, næringarfræðingar.
4. Sérhæfð offitumeðferð
Yfirlit yfir lyfjameðferðir og efnaskiptaaðgerðir við offitu. Skoðað er:
Hvenær offitumeðferð á við.
Hvernig inngripin virka inn í þyngdarstjórnun líkamans.
Hvert skal leita ef talið er skynsamlegt að nýta offitumeðferð.
Hvernig þarf að vinna með heilbrigðan lífsstíl samhliða inngripum.
Hvernig eftirliti skuli háttað.
Leiðbeinendur: Erla Gerður Sveinsdóttir, sérfræðilæknir og Sigrún Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er annað hvort staðnámskeið eða fjarnámskeið:
Staðnámskeið er haldið í Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).
Fjarnámskeið er í gegnum Teams fjarfundakerfið og eru ætlaðir fólki á landsbyggðinni og þeim sem eiga ekki heimangengt. Fundarboð er sent út 1 til 3 dögum fyrir tímann.
Tímalengd námskeiðisins er fjórar vikur
Hist er einu sinni í viku.
90 mínútur í hvert skipti.
Kostnaður
Þátttakendur greiða 17.206 krónur fyrir námskeiðið.
Nánari upplýsingar
Umsjón með námskeiði: Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Hægt er að fá frekari upplýsingar eða tilkynna forföll með tölvupósti á heilsubru@heilsugaeslan.is.
Næstu námskeið
Hefst 8. apríl 2026
14:30 til 16:00
Fjarnámskeið
Verð: 17.206 kr.
Hefst 6. maí 2026
14:30 til 16:00
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík. 2. hæð
Verð: 17.206 kr.
Hefst 27. maí 2026
08:30 til 10:00
Fjarnámskeið
Verð: 17.206 kr.
