Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

FLIKK - Netmeðferð fyrir foreldra barna með kvíða

FLIKK er internetmeðferð fyrir foreldra og aðra umönnunaraðila barna með kvíðavanda á aldrinum 5-12 ára. FLIKK stendur fyrir „ForeldraLausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka“

Markmiðið er að kenna foreldrum aðferðir til að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíðavanda og auka aðgengi að árangursríkri meðferð.

Fyrirkomulag

Ef þú telur að barnið þitt sé að glíma við kvíða, er á aldrinum 5-12 ára og þú vilt fá aðstoð, þá getur þú skráð þig í rannsóknina. skraning.flikk.is.

  • Við munum biðjum þig að svara nokkrum spurningum til að meta hvort meðferðin henti ykkur.

  • Ef svörin benda til þess að barnið þurfi aðstoð, mun sálfræðingur á heilsugæslustöð hringja stuttlega í þig.

  • Í símtalinu verður FLIKK útskýrt nánar og farið yfir hvort þið uppfyllið þátttökuskilyrðin.

  • Foreldrar sem uppfylla skilyrðin fá síðan aðgang að FLIKK og úthlutað meðferðaraðila sem leiðir þau í gegnum meðferðina.

  • Sálfræðingar barna á heilsugæslustöðvum sjá um meðferðina.

Meðferðin

  • Samanstendur af sjö meðferðarhlutum sem foreldrar vinna á sínum tíma á netinu.

  • Foreldrar fá vikuleg símtöl frá sálfræðingi á heilsugæslustöð meðan á meðferð stendur

  • Eftirfylgd mánuði eftir að meðferð lýkur.

Um rannsóknarverkefni er að ræða sem unnið er í samvinnu við Háskólann í Reykjavík. Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á góðan árangur þessarar meðferðar.

Kostnaður: Námskeiðið er gjaldfrjálst

Nánari upplýsingar