Andleg líðan á meðgöngu
Meðganga er oft tími gleði og tilhlökkunar, en getur líka verið krefjandi andlega og líkamlega. Það er eðlilegt að upplifa fjölbreytta líðan og tilfinningar á þeim tíma.
Verðandi foreldrar hafa oft áhyggjur af heilsu barnsins og eigin getu til að sinna því, sérstaklega ef þeir hafa sjálfir gengið í gegnum erfiðleika, eru undir streitu eða glíma við heilsuvanda.
Fjallað verður um
Leiðir til að stuðla að vellíðan.
Andlega heilsu.
Kvíða og áhyggjur, óvissu, depurð, streitu og sjálfsmynd.
Hvað við getum gert til að okkur líði betur.
Frekari úrræði innan sem utan Heilsubrúar sem konur geta nýtt sér að námskeiði loknu.
Allt sem rætt er í hópnum er trúnaðarmál.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er 2 skipti.
Tímalengd eru 2 klukkustundir.
Hámark 15 verðandi mæður í hverju námskeiði.
Námskeiðið er blanda af fræðslu og umræðum og fer fram í herbergi þar sem er næði.
Námskeiðið er haldið í: Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).
Kostnaður
Námskeiðið er gjaldfrjálst fyrir verðandi foreldra
Nánari upplýsingar
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru:
Auður Ýr Sigurðardóttir, sálfræðingur
Steinunn Zophoníasdóttir, ljósmóðir
Hægt að fá frekari upplýsingar með því að senda tölvupóst á heilsubru@heilsugaeslan.is.
Mikilvægt er að tilkynna forföll tímanlega.
Skráning á næstu námskeið
Hefst 14. apríl 2026
09:00 til 11:00
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík. 2. hæð
Hefst 26. maí 2026
09:00 til 11:00
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík. 2. hæð
