Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

HAM - Streita

Hugræn atferlismeðferð (HAM) er árangursrík leið til að takast á við ýmsan vanda, þar á meðal óhóflega streitu.

Á námskeiðinu verður farið yfir:

  • Streituviðbragðið og hvernig streita getur verið eðlilegt og mikilvægt viðbragð, en hvernig langvarandi og óhófleg streita getur valdið líkamlegum og tilfinningalegum einkennum og vanlíðan.

  • Áhrifarík bjargráð til að takast á við streitu á áhrifaríkan hátt.

  • Æfingar sem auka streituþol og veita betri innsýn í eigin streituviðbrögð.

Fyrirkomulag

  • Námskeiðið er ætlað átján ára og eldri

  • Námskeiðið felur í sér fræðslu, umræður og heimaverkefni.

  • Hópnámskeið, hámark fimmtán manns í hverjum hópi.

  • Tímalengd námskeiðisins er fimm vikur.

    • Hist er einu sinni í viku, tvo tíma í hvert skipti.

  • Staðsetning: Þönglabakki 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).

Kostnaður

  • Þátttakendur greiða 17.206 krónur fyrir námskeiðið.

Nánari upplýsingar

Hægt er að fá frekari upplýsingar eða tilkynna forföll með tölvupósti á heilsubru@heilsugaeslan.is.

Næstu námskeið

Hefst 30. apríl 2026

15:00 til 17:00

Þönglabakki 1, 109 Reykjavík. 2. hæð

Verð: 17.206 kr.