Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Barn verður til - og foreldrar líka!

Námskeið fyrir verðandi foreldra haldið á vegum Geðheilsumiðstöðvar barna. Allir verðandi foreldrar eru velkomnir með maka, vin eða stuðningsaðila.

Námskeiðið er tengslamiðað og fjallað verður um

  • Áhrif reynslu foreldra úr eigin uppeldi

  • Samskipti og tengslamyndun

  • Þroska barna, grát þeirra og svefn

  • Líðan foreldra í barneignaferli og parasamskipti

Heppilegur tími til að hefja námskeið er eftir 25. viku. Mikilvægt er að skuldbinda sig til að mæta í báða tímana.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er tvö skipti, tvær klukkustundir í senn.

  • Tími 1: Að eiga von á barni, barnið í móðurkviði og fyrstu vikurnar eftir fæðingu.

  • Tími 2: Tjáning barnsins, foreldrahlutverkið og parasamskipti.

Kostnaður

  • Námskeiðið er gjaldfrjálst fyrir verðandi foreldra.

Nánari upplýsingar

  • Umsjón: Fríður Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Soffía Bæringsdóttir, fjölskyldufræðingur

Hægt að fá frekari upplýsingar með því að senda tölvupóst á gmb@heilsugaeslan.is.