Breytingaskeiðið - Fögnum næsta áfanga
Fræðsla um breytingaskeið kvenna, miðar að því að dýpka skilning og þekkingu kvenna á breytingaskeiðinu. Hóptíminn hentar öllum konum sem langar til að fræðast um breytingaskeiðið.
Í fræðslunni verður farið yfir
Helstu líkamlegu og andlegu breytingar sem konur geta upplifað á þessu lífsskeiði.
Hvernig er hægt að undirbúna sig undir að takast á við þetta lífsskeið, finni meiri vellíðan og ró og geta tekið upplýsta ákvörðun um sín næstu skref.
Bjargráð sem konur geta nýtt sér til að bæta líðan og lífsgæði ásamt
Meðferðarmöguleika
Áhrif breytingaskeiðs á heilsu kvenna til framtíðar
Nánd í parsamböndum
Jákvæðar hliðar breytingaskeiðsins.
Í framhaldi af tímanum býðst áframhaldandi þjónusta sem skýrt verður frá í fræðslunni.
Fyrirkomulag
Í boði eru bæði staðnámskeið og fjarnámskeið í gegnum fjarfundarkerfið Teams.
Námskeiðið er 1. skipti
Tímalengd eru 2 klukkustundir
Staðnámskeið: er haldið í: Þönglabakki 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).
Fjarnámskeið: er í gegnum Teams fjarfundakerfið og eru ætlaðir fólki á landsbyggðinni eða þeim sem eiga ekki heimangengt. Fundarboð er sent út 1 til 3 dögum fyrir tímann.
Kostnaður
Þátttakendur greiða 5.377 krónur fyrir námskeiðið.
Nánari upplýsingar
Leiðbeinendur: Sólrún Ólína Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur og Steinunn Zophoníasdóttir, ljósmóðir
Umsjón með námskeiði: Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Hægt er að fá frekari upplýsingar eða tilkynna forföll með tölvupósti á heilsubru@heilsugaeslan.is.
Mikilvægt er að tilkynna forföll tímanlega
Skráning á næstu námskeið
Hefst 15. apríl 2026
14:00 til 16:00
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík. 2. hæð
Verð: 5.377 kr.
Hefst 27. maí 2026
14:00 til 16:00
Fjarnámskeið
Verð: 5.377 kr.
