Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Svefn grunnskólabarna

Um 20 til 30% grunnskólabarna glíma við svefnvanda og hlutfallið er hærra meðal barna með ADHD, einhverfu eða kvíða. Svefnfræðsla getur hjálpað við að leysa úr flækjum og bæta samskipti í kringum svefn barna.

Svefnfræðslan er ætluð:

  • Foreldum og umsjáraðilum barna sem glíma við væga svefnerfiðleika.

  • Öllum sem vilja afla sér þekkingar um svefn barna á grunnskólaaldri.

  • Öllum sem vilja bæta svefn barna á grunnskólaaldri.

Sérstök áhersla er lögð á börn á aldrinum 6 til 12 ára.

Farið er yfir

  • Orsakir og áhrif svefnvanda á barnið og fjölskyldu þess.

  • Svefnþörf og einkenni svefnerfiðleika.

  • Skjánotkun, koffínneyslu og dægursveiflur unglinga á grunnskólaaldri.

  • Leiðir til að bæta svefnvenjur barna.

Fyrirkomulag

Fræðslan er á myndbandi sem tekur um klukkustund og glærum (.pdf) sem hægt er að sækja. Þú getur líka horft á fræðsluna á Vimeo.

Kostnaður: Námskeiðið er gjaldfrjálst

Fræðslumyndband fyrir foreldra gunnskólabarna

Nánari upplýsingar

Umsjón með fræðslunni hefur Bryndís Þorsteinsdóttir, sálfræðingur á Geðheilsumiðstöð barna og verkefnið fékk Lýðheilsustyrk 2023.

Næstu námskeið

Engin námskeið í skráningu eins og er.