ADHD námskeið - Uppeldi barna
Námskeiðið er fyrir foreldra barna 5 til 11 ára og eru í 1. til 6. bekk, sem eru þegar greind með ADHD eða sýna hamlandi ADHD einkenni samkvæmt skimun/frumgreiningu. Námskeiðið hentar ekki ef barnið er með alvarlegar eða fjölbreyttar fylgiraskanir.
Tilgangur námskeiðsins
Fræða foreldra um áhrif ADHD á tilveru barna.
Styðja foreldra við að tileinka sér uppeldisaðferðir sem henta börnum með ADHD og tengdar raskanir.
Styðja foreldra til að skoða núverandi stöðu, gera áætlanir og framfylgja þeim til að taka á eða fyrirbyggja ýmsan vanda sem algengt er að upp komi.
Markmiðið er að foreldrar læri hagnýtar og sannreyndar aðferðir sem nýtast þeim til lengri tíma.
Á námskeiðinu verður farið yfir
Tími 1 - Einkenni og áhrif ADHD á hegðun barna og samspil þessa við umhverfið. Orsakir óhlýðni og þróun samskipta í fjölskyldum. Grunnatriði atferlismótunar.
Tími 2 - Uppeldisfærni og bjargráð foreldra, lykilatriði í uppeldi barna með ADHD, að veita æskilegri hegðun athygli og nota jákvæða athygli markvisst til kennslu.
Tími 3 - Daglegt skipulag, rammi, rútína og reglur. Að gefa skýr fyrirmæli og ýta undir hlýðni, góða hegðun, sjálfstæði og sjálfsaga.
Tími 4 - Kynning á mismunandi umbunarkerfum; notkun, fyrirkomulag og framkvæmd. Val markhegðunar og umbunar.
Tími 5 - Viðurlög við óæskilegri hegðun, mismunandi leiðir. Að taka á hegðun utan heimilis, sjá erfiðleika fyrir og skipuleggja fyrirbyggjandi aðgerðir og viðbrögð.
Tími 6 - Skipulag til framtíðar, hvað á að gera ef hegðun barns versnar, þarf einhverju að breyta í núverandi aðgerðum? Niðurstöður matslista, ráðgjöf, endurgjöf og útskrift.
Lögð er rík áhersla á umræður og virka þátttöku foreldra til að hámarka gagnsemi efnisins. Hver tími námskeiðsins byggir á þeim fyrri, svo mikilvægt er að sækja alla tíma. Mælt er með því að báðir foreldrar sæki námskeiðið.
Fyrirkomulag
Boðið er upp á stað og fjarnámskeið
Tímalengd námskeiðisins er 6 vikur.
Einu sinni í viku í tvær klukkustundir í senn.
Foreldrar fylla út matslista í upphafi og lok námskeiðs.
Unnin eru heimaverkefni milli tíma, sem rædd eru í kjölfarið og gefin er ráðgjöf um framhaldið.
Einstaklingsráðgjöf er í boði eftir þörfum.
Staðsetning: er haldið í Geðheilsumiðstöð barna, Vegmúla 3, 108 Reykjavík.
Kostnaður: Námskeiðið er gjaldfrjálst en verð vegna námskeiðsgagna er 4000 krónur.
Nánari upplýsingar
Námskeiðið er haldið á vegum Geðheilsumiðstöðvar barna.
Leiðbeinendur hverju sinni eru tveir fagaðilar sem eru sérfróðir um ADHD og skyldar raskanir og hafa staðgóða reynslu af vinnu með foreldrum og börnum.
Nánari upplýsingar um skráningu á namskeid.gmb@heilsugaeslan.is
