OCD námskeið - Meðferð fyrir unglinga
Námskeiðið er ætlað unglingum 12 til 18 ára með áráttu- og þráhyggjuröskun og foreldrum þeirra.
Tilraunaúrræðið Sumarnámskeið fyrir unglinga með OCD verður haldið vorið 2026 - Uppbókað er á námskeiðið
Í hópnum verða 6 til 8 unglingar sem glíma við OCD. Hver og einn hefur sinn þjálfara eða meðferðaraðila í hverjum tíma. Reyndir sálfræðingar í heilsugæslunni eru meðferðaraðilar á námskeiðinu.
Ef þig grunar að unglingurinn þinn sé með OCD sem er hamlandi í daglegu lífi, hafðu endilega samband við okkur til þess að athuga hvort námskeiðið gæti hentað ykkur sem meðferðarúrræði.
Skimunarferli fyrir næsta OCD sumarnámskeið, opnast þann 1. febrúar 2027.
Námskeiðið veitir fræðslu um OCD og hvernig það hamlar daglegu lífi
Unglingarnir:
læra aðferðir til að minnka þráhyggjur og áráttur.
vinna æfingar með þjálfara sínum.
vinna verkefni á námskeiðinu og taka þátt í æfingum til að streitast á móti OCD-inu
Fyrir þátttöku fá þau stig sem hægt er að skipta í gjafakort.
Foreldrar mæta einnig í hóptíma með öðrum foreldrum til að skilja OCD betur, áhrif þess á daglegt líf og hvaða verkfæri duga til að streitast á móti því.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er daglega í 2 vikur frá 19. maí til 2. júní 2026, alls 10 skipti, 2,5 klukkustundir í senn.
Dagsetning | Dagur | Unglingar | Foreldrar |
|---|---|---|---|
19. maí (Tími 1) | Þriðjudagur | 13 til 15:30 | 13.30 til 15:30 |
20. maí (Tími 2) | Miðvikudagur | 13 til 15:30 | — |
21. maí (Tími 3) | Fimmtudagur | 13 til 15:30 | — |
22. maí (Tími 4) | Föstudagur | 13 til 15:30 | 13:30 til 15:30 |
26. maí (Tími 5) | Þriðjudagur | 13 til 15:30 | 13:30 til 15:30 |
27. maí (Tími 6) | Miðvikudagur | 13 til 15:30 | — |
28. maí (Tími 7) | Fimmtudagur | 13 til 15:30 | — |
29. maí (Tími 8) | Föstudagur | 13 til 15:30 | 13:30 til 15:30 |
1. júní (Tími 9) | Mánudagur | 13 til 15:30 | — |
2. júní (Tími 10) | Þriðjudagur | 13 til 15:30 | 13:30 til 15:30 |
Foreldrar og unglingar sem taka þátt í námskeiðinu verða beðnir um að svara spurningalista fyrir námskeið, eftir námskeið og aftur 6 mánuðum eftir að námskeiðið klárast.
Það er alveg frjálst að svara spurningalistunum en í hvert sinn sem foreldrar og unglingar svara listunum fá þau sitthvort gjafabréfið í bíó.
Kostnaður
Meðferðin er niðurgreidd með styrkjum frá Lýðheilsusjóði Landlæknisembættisins, Heilbrigðisráðuneytinu, Barnavinafélaginu Sumargjöf og Samfélagssjóði Landsbankans.
Nánari upplýsingar
Reyndir sálfræðingar í heilsugæslunni eru meðferðaraðilar á námskeiðinu.
Námskeiðið var þróað í Kanada og góð reynsla er af því þar. Til kanna hvort námskeiðið reynist eins vel hérlendis verðu gerð rannsókn á árangrinum.
Námskeiðið er á vegum Geðheilsumiðstöðvar barna hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sálfræðideildar Háskóla Íslands.
Fyrir frekari upplýsingar um námskeiðið, hafðu samband með tölvupósti: namskeid.gmb@heilsugaeslan.is
Næstu námskeið
Engin námskeið í skráningu eins og er.
