Brjóstagjöf
Rætt verður um helstu atriði brjóstagjafar sem gott er að fræðast um áður en barn fæðist. Námskeiðið hentar vel snemma í meðgöngu.
Farið er yfir helstu atriði brjóstagjafar
Brjóstagjöf fyrstu vikurnar eftir fæðingu.
Aðferðir við að leggja á brjóst og tengslamyndun.
Hvernig greina má þarfir barnsins.
Eiginleika og framleiðslu brjóstamjólkur.
Vandamál sem geta komið upp fyrstu vikurnar.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er
fjarnámskeið og fer fram á Teams.
hvert námskeið er eitt skipti og stendur yfir í 2 og 1/2 klukkustund.
Kostnaður
Námskeiðið er gjaldfrjálst fyrir verðandi foreldra sem eru í meðgönguvernd á heilsugæslum á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Nánari upplýsingar
Umsjón: Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Hægt að fá frekari upplýsingar með því að senda tölvupóst á heilsubru@heilsugaeslan.is.
