Leghálsskimun – Verndandi forvörn
Leghálsskimun er rannsókn á leghálsi fyrir einkennalausa. Öllum með legháls á aldrinum 23 til 64 ára og hafa stundað kynlíf, er ráðlagt að mæta í skimun óháð kyni rekkjunauta.
Boðsbréf í skimun fyrir leghálskrabbameini
Boð í skimun eru send út til allra með legháls á aldrinum:
23 til 29 ára, á 3 ára fresti
30 til 64 ára, á 5 ára fresti
Tímapantanir
Þau sem hafa fengið boðsbréf geta:
pantað tíma í skimun með símtali í heilsugæslu að eigin vali
bókað tíma á mínum síðum Heilsuveru, ef búsettir á höfuðborgarsvæðinu
mætt án tímabókunar í opið hús í leghálsskimun
Niðurstöður
Rafrænt svarbréf úr skimun er sent í gegnum Heilsuveru og Ísland.is þegar niðurstöður rannsóknar liggja fyrir.
Aðgengi fyrir hreyfihamlaða
Best aðgengi fyrir hreyfihamlaða er á heilsugæslustöðvum í Glæsibæ, Hamraborg, Höfða, Kirkjusandi, Mosfellsumdæmi, Seltjarnarnesi og Vesturbæ.
Frekari upplýsingar
Upplýsingar um skimun á vef Landlæknis
Skimun fyrir leghálskrabbameini (.pdf) á ensku (.pdf), á pólsku(.pdf)
