Tilraunaverkefni með talþjálfun í grunnskólum farið af stað
5. nóvember 2026
Talmeinafræðingar frá Heyrnar- og talmeinastöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins taka til starfa í fjórum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Um er að ræða tilraunaverkefni heilbrigðisráðuneytisins til tveggja ára með nýrri nálgun í talmeinaþjónustu.

„Við áætlum að um tíu til tólf prósent barna á grunnskólaaldri þurfi á þjónustu talmeinafræðinga að halda svo að í 500 barna skóla áætlum við að um 50 börn að lágmarki þurfi þjónustu,“ segir Anna Ósk Sigurðardóttir talmeinafræðingur, sem leiðir tilraunaverkefnið.
Mikil bið hefur verið eftir þjónustu talmeinafræðinga undanfarin ár. Til að bregðast við þeirri stöðu ákvað heilbrigðisráðuneytið að efna til tilraunaverkefnis þar sem talmeinafræðingar starfa í grunnskólum og veita börnum þar þjónustu í þeirra nærumhverfi. Til að byrja með munu fjórir grunnskólar taka þátt í verkefninu og mun einn talmeinafræðingur frá Heyrnar- og talmeinastöð vera staðsettur í hverjum skóla.
Verkefnið nær til barna með tal- og málmein sem falla undir viðmið Sjúkratrygginga Íslands. Þessi börn eru með alvarleg frávik í málþroska og framburði og hafa mörg hver beðið lengi á biðlistum eftir þjónustu.
Meiri samfella í þjónustu
„Við rennum aðeins blint í sjóinn með fjölda barna sem þurfa þjónustu í hverjum skóla en í þessu tilraunaverkefni munum við afla upplýsinga um hópinn og þjónustuþörfina,“ segir Anna Ósk. „Við vonumst til þess að ná góðri samfellu í þjónustu við börnin og samstarfi með kennurum og foreldrum í þessu verkefni.“
Til stendur að ráða fleiri talmeinafræðinga til að taka þátt í tilraunaverkefninu og fjölga skólunum upp samhliða því. „Það er skemmtilegt að segja frá því að stjórnendur allra skóla sem við höfum leitað eru gífurlega spenntir fyrir verkefninu,“ segir Anna Ósk. Hún segir að þó þetta tilraunaverkefni verði aðeins í skólum á höfuðborgarsvæðinu sé verið að skoða leiðir til þess að prófa þessa nálgun á landsbyggðinni.
Stytta bið eftir talmeinaþjónustu
„Við vonum auðvitað að tilraunaverkefnið skili árangri og að með þessari nýju leið getum við stytt bið barna eftir talmeinaþjónustu. Þetta er mjög spennandi tækifæri til að prófa nýja nálgun, safna reynslu og læra af henni“ segir Anna Ósk.
