Bólusetningar við inflúensu hefjast 26. október
19. október 2026
Vegna tafa á afhendingu bóluefnis við inflúensu þurfti að fresta bólusetningum um nokkra daga. Stefnt er að því að hefja bólusetningar fyrir fólk í áhættuhópum 26. október.

Uppfært 22. október: Bóluefnið er að koma á heilsugæslustöðvar okkar og verður boðið upp á bólusetningar fyrir fólk í áhættuhópum frá mánudeginum 26. október. Verið er að opna fyrir tímabókanir á Mínum síðum á Heilsuveru.
Áformað var að hefja bólusetningar fólks í forgangshópum 20. október og voru heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þegar byrjaðar að bóka tíma. Þar sem afhending bóluefnis hefur dróst þurfti að fresta tímabókunum um nokkra daga.
Bólusetningar fyrir fólk í áhættuhópum munu hefjast á öllum heilsugæslustöðvum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins 26. október.
Þeir sem teljast í áhættuhópum eru:
Fólk 60 ára og eldra.
Börn milli 6 mánaða og 5 ára aldurs.
Börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Barnshafandi einstaklingar.
Heilbrigðisstarfsfólk sem annast fólk í áhættuhópum.
Fólk sem telst í áhættu á samsmiti inflúensu og fuglainflúensu vegna starfs síns, samkvæmt skilgreiningu sóttvarnalæknis.
Í kjölfar bólusetninga fólks í áhættuhópum verður opnað fyrir bólusetningar fyrir aðra.
Bóka þarf tíma í bólusetningar í gegnum Mínar síður á Heilsuveru.
Áformað er að bólusetningar fyrir þau sem ekki eru í áhættuhópum hefjist mánudaginn 9. nóvember.
Börn 2 til 4 ára fá nefúða
Vikuna 2. til 6. nóvember verður börnum 2 til 4 ára boðið upp á bólusetningu við inflúensu með nefúða. Ekki þarf að bóka tíma heldur verður opið hús á heilsugæslustöðvum milli 15 og 17. Nefúðinn er kominn til landsins og því engar tafir á þessum bólusetningum.
Eldri systkini sem eru í áhættuhópum eru velkomin með og geta fengið nefúða.
Tilvalið er fyrir foreldra að koma við á heilsugæslunni með börnin á leiðinni heim eftir leikskólann, og bangsinn er velkominn líka til að fá nefúða.
