Starfsfólk HTÍ boðið velkomið til heilsugæslunnar
12. mars 2026
Starfsfólk Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar (HTÍ) var boðið velkomið til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) á fundi með starfsfólki miðstöðvarinnar í dag. Starfsemin flyst formlega til HH þann 1. maí næstkomandi.

Engar breytingar eru fyrirhugaðar á þjónustu miðstöðvarinnar þegar hún færist undir HH. Hún mun áfram sinna íbúum frá landinu öllu og verður áfram hýst í húsnæði HH í Hraunbæ 115 í Árbænum, þar sem hún hefur verið síðastliðið ár. Starfsfólkið færist til HH og heldur sínum launakjörum eftir breytinguna.
,,Við erum mjög spennt fyrir þessari breytingu og hlökkum til að verða hluti af stórri og öflugri heilbrigðisstofnun", segir Kristján Sverrisson, forstjóri HTÍ. ,,Við sjáum fjölmörg tækifæri í samrunanum, bæði fyrir skjólstæðinga okkar og starfsfólk og hlökkum til að geta veitt áfram frábæra þjónustu. Markmiðið er að bæta aðgengi og styrkja starfsemi undir nýju skipulagi heyrnar- og talmeinaþjónustu innan heilsugæslunnar."
Mikil þekking og reynsla
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri HH, heimsótti starfsstöð HTÍ í dag ásamt öðrum fulltrúum framkvæmdastjórnar, hitti starfsfólkið og bauð það velkomið. „Við hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins ætlum að leggja okkur fram við að bjóða starfsfólk Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar velkomið til okkar og um leið að tryggja að það gangi vel fyrir sig að færa starfsemina í heild sinni til okkar,“ segir Sigríður Dóra.
„Það er mikil reynsla og þekking á málaflokknum hjá starfsfólki miðstöðvarinnar og við hjá heilsugæslunni ætlum að styðja við starfsfólkið í sínum störfum,“ segir Sigríður Dóra. „Hjá okkur munu þau fá aukinn stuðning þegar kemur að tæknimálum, mannauðsmálum, innkaupum, húsnæðismálum og fleiru. Okkar markmið verður að efla miðstöðina og tryggja að hún geti veitt framúrskarandi þjónustu hér eftir sem hingað til."
14 prósent með heyrnarskerðingu
Alþingi samþykkti nýlega frumvarp heilbrigðisráðherra þar sem fram kemur að stofnunin verði lögð niður frá 1. maí næstkomandi. Þó stofnunin sé formlega lögð niður er í raun verið að færa starfsemina í heilu lagi undir HH. Lögin voru komin til ára sinna og nauðsynlegt að endurskipuleggja þjónustuna í takti við breytta tíma.
Áætlað er að rúmlega 14 prósent landsmanna séu með væga til mjög alvarlega heyrnarskerðingu, þar af um tólf þúsund manns með miðlungs til alvarlega heyrnarskerðingu sem krefst aðkomu sérfræðinga. Auk þess eru skýr tengsl milli hækkandi aldurs og heyrnarskerðingar og því má gera ráð fyrir að hérlendis muni um 35 þúsund manns þurfa á einhvers konar heyrnarþjónustu að halda árið 2030.
