Skjólstæðingar ánægðir með þjónustu heilsugæslustöðva
30. mars 2026
Mikil ánægja mælist með þjónustu heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu í nýjustu könnun Sjúkratrygginga Íslands. Ánægja með þjónustu og viðmót starfsfólks er sérstaklega mikið og lítill munur á milli stöðva sem reknar eru af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) og stöðva sem reknar eru af einkaaðilum.

Könnun Sjúkratrygginga var gerð frá september og út desember 2025. Allir sem nýttu sér þjónustu heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu fengu SMS með hlekk í könnunina. Alls bárust um 19 þúsund svör.
Nítján heilsugæslustöðvar eru starfræktar á höfuðborgarsvæðinu og var spurt um þær allar í könnuninni. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins rekur fimmtán heilsugæslustöðvar en fjórar stöðvar á höfuðborgarsvæðinu eru reknar af einkaaðilum. Allar eru fjármagnaðar á sama hátt, í gegnum fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar og skjólstæðingar greiða það sama fyrir þjónustuna á öllum stöðvum.
Meðaltal einkunna heilsugæslustöðva HH í könnuninni var á bilinu 4,05 til 4,29 af þar sem fimm er hæsta mögulega einkunn. Meðaltal stöðva HH var 4,17. Það er svipað og meðaleinkunn annarra heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu, sem mældist 4,16 í könnuninni. Því reyndist ekki nema óverulegur munur þegar bornar voru saman stöðvar sem reknar eru af HH og stöðvar sem reknar eru af einkaaðilum.

Gengur betur að fá tíma hjá HH
Í könnuninni var spurt hvernig hafi gengið að fá tíma hjá heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins. Talsverður munur var á svörum eftir því um hvaða stöð var rætt. Meðaleinkunn stöðva HH í könnuninni var 3,07 en meðaleinkunn einkarekinna stöðva var 2,76.
„Bið eftir þjónustu er áskorun fyrir allar heilsugæslustöðvar og við hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins höfum unnið markvisst að því að stytta biðina. Þó við viljum auðvitað alltaf gera betur og tryggja að fólk fái þjónustu sem fyrst er þetta sannarlega jákvætt merki,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri HH.
„Við erum þegar farin að forflokka öll bráð erindi í Upplýsingamiðstöð HH í gegnum símann 1700 og netspjall Heilsuveru. Þar hefur náðst góður árangur. Þeir sem þurfa að fá tíma koma samdægurs eða daginn eftir. Aðrir fá góð ráð frá reynslumiklum hjúkrunarfræðingum sem vinna samkvæmt vel útfærðum vinnuferlum,“ segir Sigríður Dóra
„Reynslan hefur sýnt að það er í mörgum tilvikum nóg að fá ráð í gegnum síma eða netspjall. Með þessari aðferðafræði hefur okkur því tekist að fækka óþörfum komum á heilsugæslustöðvar. Það er gott bæði fyrir skjólstæðingana, sem geta látið sér batna í sófanum heima, og fyrir starfsfólk stöðvanna, sem hefur nú betri tíma til að sinna mikilvægum erindum.“
Viðmót starfsfólks til fyrirmyndar
Í könnun Sjúkratrygginga var spurt um viðmót starfsfólks heilsugæslustöðva. Þar var frekar lítill munur á svörum milli stöðva og greinilega mikil ánægja með viðmótið á öllum stöðvum. Meðaltal stöðva HH var 4,67 af fimm mögulegum en 4,71 hjá einkareknu heilsugæslustöðvunum.
Einnig var almenn ánægja með þjónustuna og stöðvar HH fengu einkunnina 4,44 af fimm mögulegum og aðrar stöðvar á höfuðborgarsvæðinu 4,54. Þegar spurt var um áreiðanleika þeirra upplýsinga sem fólk fékk var einkunnin einnig há, 4,49 hjá stöðvum HH og 4,56 á einkareknu heilsugæslustöðvunum.
Vinnum öll innan sama rammans
„Þessi könnun sýnir mikla ánægju með allar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu og það hvetur okkur auðvitað til dáða um að gera enn betur,“ segir Sigríður Dóra.
„Við sjáum líka að það er lítill munur á svörum skjólstæðinga eftir því hvort um er að ræða okkar heilsugæslustöðvar eða stöðvar sem eru reknar af einkaaðilum. Það er að mínu mati eðlilegt, það er reynslumikið og gott starfsfólk á öllum heilsugæslustöðvum sem vinnur faglega og af heilindum. Við störfum öll innan sama rammans og með sama markmið, að bjóða upp á góða þjónustu á öflugum fyrsta viðkomustað í heilbrigðiskerfinu,“ segir Sigríður Dóra.
Breytt aðferðafræði
Sjúkratryggingar hafa gert kannanir á þjónustu heilsugæslustöðva áður, fyrst árið 2019 en svo aftur 2022, 2023 og svo nýjustu könnunina árið 2025. Samanburður milli þessara kannana er varasamur að mati Sjúkratrygginga þar sem ný aðferðafræði var tekin upp í nýjustu könnuninni. Áður fékk fólk boð um að taka þátt í könnun með tölvupósti eða sendingu í gegnum Ísland.is, oft talsvert löngu eftir komu á heilsugæslu. Í nýjustu könnuninni fékk fólk SMS með boði um að taka þátt í könnun strax eftir komuna.
