Nýr vefur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Ísland.is
5. mars 2026
Vefur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur nú verið fluttur á Ísland.is. Þar má nú finna allar upplýsingar um þjónustu stofnunarinnar, bæði a höfuðborgarsvæðinu og á landsvísu.

Ísland.is er upplýsingavefur þar sem notendur geta nálgast upplýsingar og þjónustu sem hið opinbera veitir. Á nýjum vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) eru upplýsingar settar fram á skipulegan hátt og á einföldu máli. Vefurinn er bæði á íslensku og ensku.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins rekur 15 heilsugæslustöðvar í öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu auk þess sem Heimahjúkrun HH þjónustar íbúa í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Þá rekur HH einnig þrjú svæðisbundin geðheilsuteymi sem sinna höfuðborgarsvæðinu, auk ýmissar annarrar svæðisbundinnar þjónustu.
Starfar einnig á landsvísu
Hluti af starfsstöðvum HH veitir þjónustu á landsvísu. Það á til dæmis við um fjögur stór geðheilsuteymi: Geðheilsumiðstöð barna, Geðheilsuteymi ADHD, Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana og Heilaörvunarmiðstöð.
Þá þjóna sérhæfðar starfsstöðvar eins og Upplýsingamiðstöð HH, Samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana, Heilsubrú og Heilbrigðisskoðun innflytjenda einnig öllu landinu.
Auðvelt að finna upplýsingar
Á nýjum vef HH á Ísland.is verður almenningi gert auðveldara fyrir að finna upplýsingar um þjónustu stofnunarinnar, eins og aðra þjónustu ríkisins.
