Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Ný netmeðferð fyrir foreldra kvíðinna barna

23. október 2025

Foreldrum og öðrum umönnunaraðilum barna á aldrinum 5 til 12 ára sem glíma við kvíða stendur til boða að taka þátt í nýrri netmeðferð. Þar er meðal annars farið yfir aðferðir til að aðstoða börnin við að ná tökum á vandanum.

Meðferðin hefur hlotið heitið FLIKK, sem stendur fyrir ForeldraLausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka. Hún er rannsóknarverkefni sem unnið er í samvinnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Háskólans í Reykjavík. Verkefnið byggir á erlendum rannsóknum sem sýnt hafa fram á góðan árangur af slíkri meðferð.

  • Rannsóknir sýna að allt að 30 prósent einstaklinga muni á einhverjum tímapunkti á lífsleiðinni þróa með sér kvíðaröskun.

  • Kvíðaröskun er kvíði sem verður svo mikill að hann hindrar eða skerðir verulega daglegt líf.

  • Helmingur allra kvíðaraskana þróast fyrir 12 ára aldur.

  • Börn sem ekki fá faglega aðstoð eru í aukinni hættu að þróa með sér frekari geðrænan vanda seinna á lífsleiðinni.

FLIKK-meðferðin samanstendur af sjö meðferðarhlutum sem foreldrar vinna sjálfir í gegnum netið. Þá fá þátttakendur vikuleg samtöl frá sálfræðingi af heilsugæslustöð, auk eftirfylgd í mánuð eftir að meðferð lýkur.

Ekki þarf tilvísun til að skrá sig í meðferðina en foreldrar eða forráðamenn sem hafa áhuga á að taka þátt þurfa að svara nokkrum spurningum til að hægt sé að meta hvort meðferðin henti.

Frekari upplýsingar og hlekkur á skráningarsíðu er á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.