Meiri þörf fyrir þjónustu Heimahjúkrunar
11. júní 2026
Veruleg aukning í fjölda vitjana hjá Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á síðasta ári er vísbending um að skjólstæðingar hafi meiri þörf fyrir þjónustu og minni færni en áður.

Heimahjúkrun er í boði fyrir einstaklinga sem þurfa heilbrigðisþjónustu í heimahúsi. Hún sinnir þjónustu við einstaklinga í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Þjónustan er einstaklingsmiðuð og byggir á mati á þörfum hvers og eins. Hjúkrunarfræðingur eða iðjuþjálfi skipuleggur þjónustuna í samvinnu við einstakling og aðstandendur.
Þrátt fyrir fjölgun vitjana og aukna eftirspurn eftir þjónustu Heimahjúkrunar er almennt stutt bið fyrir nýja skjólstæðinga að fá þjónustu. Á síðasta ári tókst með forgangsröðun erinda að veita þeim sem mest þurftu á aðstoð að halda þjónustu innan þriggja sólarhringa frá því beiðni barst um þjónustu.
Verkefnum fjölgað mikið
Á síðast ári fóru samskipti þessarar stærstu starfseiningar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í fyrsta skipti yfir 200 þúsund, og fjölgaði um 12 prósent milli ára. Aukningin varð þrátt fyrir verkefnið Gott að eldast sem tók gildi 1. maí 2025, sem færði þjónustu við skjólstæðinga í Mosfellsbæ frá Heimahjúkrun. Að meðaltali voru skráð rúmlega 560 samskipti á hverjum degi, þar af tæplega 460 vitjanir á heimili skjólstæðinga.
„Þessi aukning á þjónustunni á síðasta ári gefur vísbendingar um að okkar skjólstæðingar hafi meiri þörf fyrir þjónustu og minni færni en áður,“ segir Hildur Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Heimahjúkrunar.
Markmiðið með þjónustunni er að auka sjálfsbjargargetu skjólstæðinga og gera þeim kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður eins lengi og unnt er. Mörg dæmi eru um að með þjónustu Heimahjúkrunar hafi skjólstæðingar sem voru komnir með samþykki fyrir rými á hjúkrunarheimili getað frestað flutningi af eigin heimili um langa hríð, í einhverjum tilvikum nærri átta ár.
„Þessi dæmi undirstrika enn og aftur mikilvægi þess að veita fólki stuðning til að það geti búið sem lengst á eigin heimili. Það er bæði betra fyrir okkar skjólstæðinga og auðvitað er það hagkvæmara fyrir samfélagið en að fólk flytjist á hjúkrunarheimili,“ segir Hildur.
Snjalllausnir spara sporin
Miklar breytingar hafa verið í starfsemi Heimahjúkrunar á undanförnum árum, sér í lagi tengt tækilegum lausnum. Í dag eru nær öll samskipti við skjólstæðinga skráð í rauntíma á heimilum þeirra með snjallforriti í síma starfsfólks sem er beintengt sjúkraskrá. Þá hefur starfsfólk aðgang að nýjustu upplýsingum um hjúkrunarþörf í gegnum forritið og allar upplýsingar uppfærðar í rauntíma.
Einnig hefur fjölgun sjálfvirkra lyfjaskammtara á heimilum skjólstæðinga gengið vel og mikil ánægja hjá skjólstæðingum með skammtarana. Þeir gera fólki auðveldara fyrir að muna eftir lyfjum og að taka rétt lyf á réttum tíma. Með auknum fjölda lyfjaskammtara hefur verið hægt að draga að einhverju leiti úr vitjunum og gera fólk sjálfstæðara og öruggara með lyfjanotkun.
Um 750 fá þjónustu
Alls fá um 750 skjólstæðingar þjónustu á hverjum tíma og er starfsfólk Heimahjúkrunar um 150 talsins. Áhersla er á þverfaglega teymisvinnu sem veitt er af hjúkrunarfræðingum, sérfræðingum í hjúkrun, geðhjúkrunarfræðingi, sjúkraliðum, félagsliðum, iðjuþjálfum, öldrunarlækni, geðlækni, næringarfræðingi, íþróttafræðingi, klínískum lyfjafræðingi, almennu starfsfólki, mannauðsfulltrúum og móttökuriturum.
