Heyrnar og talmeinastöð tekur til starfa hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
30. apríl 2026
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands hefur verið lögð niður og starfsemin færð til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH). Ný eining hefur fengið heitið Heyrnar og talmeinastöð HH og tekur formlega til starfa 1. maí 2026.

Þjónusta Heyrnar og talmeinastöðvar við skjólstæðinga verður óbreytt eftir yfirfærsluna til HH.
Starfsfólk mun áfram sinna skjólstæðingum af öllu landinu.
Starfsemin verður áfram í sama húsnæði, í Hraunbæ 115 í Árbæ.
Starfsfólk verður áfram með viðveru á Akureyri og Sauðárkróki.
Áfram verður boðið upp á heimsóknir á heilsugæslustöðvar á landsbyggðinni.
Með yfirfærslunni færist starfsfólk stöðvarinnar allt til HH. Það mun halda sínum launakjörum og réttindum eftir breytinguna.
Býður nýtt samstarfsfólk velkomið
„Við þessi tímamót bjóðum við nýtt samstarfsfólk velkomið til starfa hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Það eru fjölmörg tækifæri fólgin í því að fá þessa starfsemi til okkar og ætlum okkur að veita áfram fyrsta flokks þjónustu,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri HH.
„Starfsfólk Heyrnar og talmeinastöðvar hefur mikla þekkingu og reynslu af því að þjónusta sína skjólstæðinga og við treystum því fullkomlega til að sinna sínum störfum og móta áfram starfsemina. Við sem stýrum HH munum svo leggja okkar af mörkum til að styðja við starfsfólkið í þeirra störfum og efla starfsemi nýju starfseiningar,“ segir Sigríður Dóra.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins rekur ýmsa aðra starfsemi sem starfar á landsvísu, til dæmis fjögur geðheilsuteymi, Samhæfingarstöð krabbameinsskimana og Heilbrigðisskoðun innflytjenda. Rekstur Heyrnar og talmeinastöðvar fellur því vel að skipulagi stofnunarinnar.
