Heilsugæslan Fjörður flytur tímabundið
30. mars 2026
Heilsugæslan Fjörður flytur tímabundið vegna endurnýjunar á lyftu í húsnæði stöðvarinnar. Starfsemin verður flutt tímabundið á aðrar starfsstöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Stefnt er á að opna aftur í Firði í maí.

Stöðin verður lokuð miðvikudaginn 8. apríl á meðan starfsfólk færir sig í tímabundna aðstöðu á öðrum starfsstöðvum. Öll hefðbundin þjónusta fyrir utan síðdegisvaktir verður veitt þrátt fyrir lokun í Firði.
Þjónusta Heilsugæslunnar Firði verður veitt á eftirfarandi stöðum frá og með 9. apríl 2026:
Meðgönguvernd og ung- og smábarnavernd verður staðsett í Heilsugæslunni Sólvangi, Sólvangsvegi 2, 220 Hafnarfirði (sjá kort).
Þjónusta sálfræðinga verður veitt í Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sjá kort).
Öll önnur heilsugæsluþjónusta verður veitt í Heilsugæslunni Efra-Breiðholti, Hraunbergi 6, 111 Reykjavík (sjá kort) milli klukkan 8 og 16 alla virka daga.
Starfsfólk svarar öllum nánari spurningum um fyrirkomulag þjónustunnar í síma 513 5400 milli klukkan 8 og 16 alla virka daga. Ekki hika við að hafa samband ef þið eruð óviss um hvert þið eigið að mæta eða ef þið eruð með aðrar spurningar.
Við biðjumst velvirðingar á raskinu sem þessar tímabundnu breytingar hafa í för með sér og þeim óþægindum sem þetta kann að valda skjólstæðingum og öðrum sem sækja þjónustu á stöðina.
