Hættum að kalla eftir veikindavottorðum
28. apríl 2026
Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins kallaði eftir því í grein í tímariti Sameykis að atvinnurekendur og stéttarfélög sameinist um að fella út ákvæði um staðfestingu læknis á skammtímaveikindum úr kjarasamningum.

Í greininni benti Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri HH, á að heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu ásamt Læknavaktinni hafi gefið út um það bil 50 þúsund vottorð og staðfestingar vegna skammtímaveikinda fyrir fyrirtæki og skóla á síðasta ári. Hægt er að lesa greinina í heild sinni í nýjasta tímariti Sameykis.
„Tölum skýrt. Það er enginn læknisfræðilegur tilgangur í því að fólk komi til læknis til að fá skammtímaveikindi vottuð. Við sem höfum starfað sem heimilislæknar lengi vitum að í mörgum tilvikum kemur fólk eftir að veikindin eru yfirstaðin til að fá vottorð fyrir vinnuveitanda. Læknirinn getur spurt um einkenni og vottað að viðkomandi hafi lýst einkennunum, en það er ekkert að sjá, ekkert að meðhöndla og enginn læknisfræðilegur tilgangur með heimsókninni. Læknar vilja hitta veikt fólk sem þeir geta liðsinnt. Ekki fullfrískt fólk eða fólk sem er með kvefpest eða magakveisu og ætti að halda sig heima til að jafna sig,“ skrifaði Sigríður Dóra.
Hún sagði þó mikilvægt að halda til haga að heilsugæslustöðvar vilji mjög gjarnan fá til sín fólk sem glími við ítrekuð skammtímaveikindi. „Þau geta oft verið vísbending um að eitthvað sé að sem þarf að skoða betur. Það er verkefni sem heimilislæknar eiga sinna og vilja sinna, en á forsendum sinna skjólstæðinga, ekki vinnuveitenda þeirra.“
Staðfesta að starfsmaður sé að segja satt
Sigríður Dóra sagði ljóst að þegar atvinnurekandi óski eftir staðfestingu læknis á skammtímaveikindum starfsmanns sé í raun verið að biðja lækninn um að staðfesta að starfsmaðurinn sé að segja satt til um veikindin.
„Það er ekki hlutverk læknis að vera einhverskonar refsivöndur fyrir atvinnurekendur. Ef yfirmann á vinnustað grunar að starfsmaður sé að gera sér upp veikindi er það mannauðsmál, ekki mál fyrir heilbrigðiskerfið og heimilislækna. Ef fólk vill misnota veikindaréttinn koma skammtímavottorð ekki í veg fyrir það,“ skrifaði hún.
Breyta þarf ákvæðum kjarasamninga
Ákvæði um veikindavottorð er að finna í mörgum kjarasamningum, þar með talið kjarasamningi Sameykis við ríkið. Þar er tekið fram að yfirmaður geti ákveðið að krefjast læknisvottorðs hvenær sem þörf þykir. Þar segir líka að ef veikindi eða slys valdi óvinnufærni í meira en fimm daga skuli sanna óvinnufærni með vottorði.
„Þessu þarf að breyta og þar viljum við fá bæði atvinnurekendur og stéttarfélögin með okkur í lið. Við köllum eftir því að ákvæði af þessu tagi um skammtímavottorð í öllum kjarasamningum verði felld út. Við vitum að það tekur tíma að breyta kjarasamningum og því köllum við líka eftir því að atvinnurekendur og stéttarfélög sammælist um að líta fram hjá slíkum ákvæðum þar til þeim hefur verið breytt,“ skrifaði Sigríður Dóra.
Atvinnurekendur og stéttarfélög standi með heilsugæslunni
„Vilji okkar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er skýr. Við viljum ekki að okkar læknar sói sínum tíma í að skrifa tilgangslaus vottorð. Vottorð vegna skammtímaveikinda eru þar efst á blaði. Ég hef alla trú á því að ábyrgir atvinnurekendur og forsvarsmenn stéttarfélaga komi með okkur í lið. Hér getið þið tekið beinan og milliliðalausan þátt í að verja heilbrigðiskerfið. Og það besta er að það kostar ykkar fyrirtæki ekki krónu að hætta að biðja um vottorð,“ skrifaði Sigríður Dóra að lokum.
