Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Fjöldi stuttra hádegiserinda í farsældarviku

5. mars 2026

Boðið verður upp á stutt hádegiserindi fyrir foreldra í gegnum netið alla daga vikuna 9. til 13. mars. Fjallað verður um skjátíma, tengsl og samskipti, kvíðavanda og fleira.

Heilsugæsla höfuðborgasvæðisins og Geðheilsumiðstöð barna munu bjóða upp á stutt erindi fyrir foreldra vikuna 9 til 13.mars, á farsældarviku höfuðborgarsvæðisins. Öll erindin verða send út í gegnum fjarfundarbúnað og verða öllum opin.

Erindin eru hugsuð sem stutt fræðsla og verkfæri fyrir forsjáraðila barna að 18 ára aldri. Erindin verða í hádeginu og hefjast öll klukkan 12:10 svo sem flest geti nýtt sér tækifærið og fylgst með. Hvert erindi verður um 20 mínútur að lengd.

Hægt er að smella á hlekkina fyrir hvern fyrirlestur til að fylgjast með í beinni útsendingu.

Við hvetjum foreldra og aðra sem eru áhugasamir um þessi málefni til að fylgjast með þessum stuttu erindum.

Farsæld barna í forgrunni alla vikuna

Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins efnir til farsældarviku alla vikuna 9. til 13. mars. Að farsældarráðinu standa öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólunum og íþróttafélögum.

Markmið vikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og lyfta upp þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar farsældarlaganna. Lögin fólu í sér nýja nálgun þar sem barnið er sett í öndvegi og tryggt að þjónusta og stuðningur við það sé samþættur þvert á kerfi.

Fjölbreytt verkefni

Afar fjölbreytt vinna fer fram í tilefni af farsældarvikunni, til dæmis:

  • Í Reykjavík verða vinnusmiðjur tengiliða um farsæld, kynningar á grunnstoðum farsældar, í gegnum samtal, myndbönd og fræðslu. Þá verður áhersla lögð á fjölmenningarlega farsæld og það hvernig megi betur ná til jaðarsettra hópa.

  • Í Kópavogi verður boðið uppá fræðslufundi um farsæld fyrir forsjáraðila og starfsfólk sem starfar með börnum í bænum. Tengiliðir í skólum munu einnig vekja athygli barna, forsjáraðila og samstarfsfólks á farsæld barna með fjölbreyttum leiðum.

  • Í Hafnarfirði verður athyglinni beint að því að kynna úrræði sveitarfélagsins og tengiliði farsældar. Hafnarfjarðarbæ hefur lagt áherslu á tengiliði á þessu skólaári og unnið að því að efla þá í starfi. Fjölbreyttar kynningar verða í skólunum þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk fær kynningu á hlutverki tengiliðar farsældar. Sveitarfélagið hefur látið útbúa veggspjöld og bækling sem lögð verður áhersla á að hengja upp og dreifa.

  • Í Garðabæ verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir starfsfólk bæjarins, foreldra og börn. Haldin verður vinnusmiðja með tengiliðum og málstjórum farsældarinnar og boðið verður upp á rafræna fræðslu og upprifjun um farsældarlögin fyrir allt starfsfólk sem vinnur með börnum. Auk þess verður foreldrum boðið upp á kynningu á farsældarlögunum og samþættingu þjónustu. Leik- og grunnskólar munu einnig vekja athygli á farsæld barna með ýmsum hætti og sinna fræðslu til nemenda, foreldra og starfsfólks. Víða verður unnið með börnum á þeirra forsendum, meðal annars með því að sýna BOFS-fræðslumyndbönd og nota Barnasáttmálann til að gera grein fyrir því hvað farsæld þýðir í daglegu lífi.

  • Í Mosfellsbæ leggja tengiliðir í öllum skólum sérstaka áherslu á að kynna verklagið fyrir samstarfsfólki í litlum hópum og efla þannig sameiginlega ábyrgð innan skólasamfélagsins.

  • Í Seltjarnarnesbæ verður lögð áhersla á fræðslu og vitundarvakningu í innra starfi bæjarins og þá fara fram sértæk námskeið á vegum barnaverndarþjónustu.

Nánari upplýsingar um farsæld barna má nálgast á vef Farsældar barna.