Fara beint í efnið
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Breytingar á gjaldtöku hjá geðheilsuteymum

25. ágúst 2026

Breytingar verða á gjaldtöku fyrir þjónustu geðheilsuteyma Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þann 1. september. Frá þeim degi verður innheimt komugjald, auk þess sem greiða þarf fyrir rannsóknir, námskeið og vottorð með sama hætti og hjá heilsugæslustöðvum.

Þessar breytingar eiga við um eftirfarandi geðheilsuteymi:

  • Geðheilsuteymi ADHD

  • Geðheilsuteymi austur

  • Geðheilsuteymi suður

  • Geðheilsuteymi vestur

  • Heilaörvunarmiðstöð

Þessi teymi sinna eingöngu fullorðnum einstaklingum.

Greiðsla fyrir hverja komu

Fyrir hverja komu til þessara teyma verður innheimt almennt komugjald. Gjaldið verður það sama og fyrir komu á heilsugæslustöð.

  • Komugjaldið verður 1.000 krónur fyrir hvert skipti.

  • Aldraðir, öryrkjar og fólk á endurhæfingarlífeyri eru undanþegnir og munu því ekki greiða komugjaldið.

Áfram verður innheimt sérstakt þjónustugjald fyrir ADHD-greiningu fullorðinna. Það er nú 29.223 krónur og er innheimt við upphaf greiningarferlis.

Greiðsla fyrir rannsóknir

Greiða þarf rannsóknargjald fyrir sýni sem send eru á rannsóknarstofu. Gjaldið verður það sama og hjá heilsugæslustöðvum.

  • Almennt gjald verður 3.716 krónur.

  • Aldraðir, öryrkjar og fólk á endurhæfingarlífeyri greiða 2.477 krónur.

Greiðsla fyrir námskeið

Greiða þarf gjald fyrir þátttöku í námskeiðum hjá geðheilsuteymum. Kostnaðurinn verður sá sami og fyrir önnur námskeið hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

  • Greitt er eftir fjölda skipta:

    • 1 skipti - 5.377 krónur.

    • 2-3 skipti - 10.754 krónur.

    • 4-6 skipti - 17.206 krónur.

    • 7-10 skipti - 23.658 krónur.

  • Aldraðir, öryrkjar og fólk á endurhæfingarlífeyri greiða sama gjald og aðrir.

  • Ekki er innheimt komugjald þegar komið er á námskeið.

Greiðsla fyrir vottorð

Greiða þarf fyrir vottorð hjá geðheilsuteymum. Gjaldið verður það sama og hjá heilsugæslustöðvum. Upphæðin er mismunandi eftir tegund vottorða og má finna upplýsingar um kostnað við einstök vottorð í gjaldskrá.

Senda reikning í heimabanka

Gjöld hjá geðheilsuteymum verða innheimt með því að senda skjólstæðingum reikning í heimabanka. Þeir sem ekki eru með heimabanka geta fengið reikning sendan heim í pósti.

Allar upplýsingar um kostnað við þjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins má finna í gjaldskrá.

Breytingar á gjaldtöku hjá geðheilsuteymum koma til vegna nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðuneytisins um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Þar var felld niður undanþága um gjaldskyldu sem áður gilti um geðheilsuteymi.