Bólusetningar við inflúensu hefjast 14. október
9. október 2025
Árviss bólusetning gegn inflúensu hefst á öllum heilsugæslustöðvum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þriðjudaginn 14. október. Fólk getur bókað tíma á mínum síðum á Heilsuveru eða með því að hringja í sína heilsugæslustöð.
Í október verður lögð áhersla á að bólusetja fólk í forgangshópum. Þeim sem ekki eru í forgangshópum verður boðið upp á bólusetningu í nóvember.
Þeir hópar sem eru í forgangi í bólusetningu við inflúensu eru:
Fólk 60 ára og eldra.
Börn fædd 1. janúar 2021 til 30. júní 2025 sem hafa náð sex mánaða aldri þegar bólusett er.
Börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Barnshafandi konur.
Heilbrigðisstarfsfólk sem annast fólk í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu eins og það var skilgreint í frétt frá embætti landlæknis frá árinu 2023.
Mikilvægt er að muna að koma í stuttermabol innan klæða í bólusetninguna.
Ekki bólusett við Covid
Ekki verður boðið upp á bólusetningu gegn Covid samhliða bólusetningu gegn inflúensu samkvæmt tilmælum sóttvarnarlæknis. Nánar má lesa um stöðu bólusetninga gegn Covid á vef embættis landlæknis.
