Boðið upp á bólusetningar við inflúensu í haust
24. september 2026
Boðið verður upp á bólusetningar við inflúensu á heilsugæslustöðvum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eftir miðjan október fyrir áhættuhópa og í nóvember fyrir aðra sem vilja bólusetningu.

Tvær gerðir af bóluefni verða notaðar við bólusetningar við inflúensu í haust samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnalækni.
Hefðbundið óvirkjað inflúensubóluefni sem hæfir börnum frá 6 mánaða aldri og fullorðnum. Búist er við því að efnið verði fáanlegt frá miðjum október.
Lifandi veiklað nefúðabóluefni ætlað fyrir öll börn 2 til 4 ára og fyrir 5 til 17 ára börn sem eru í áhættuhópum. Börn sem ekki geta notað nefúðabóluefnið geta fengið hefðbundið bóluefni ef það hentar. Bóluefnið er eingöngu ætlað þessum skilgreindu hópum og ekki hægt að kaupa það á heilsugæslustöðvum. Reiknað er með því að efnið verði fáanlegt snemma í október.
Áhættuhópar í forgangi
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins mun fylgja tilmælum sóttvarnalæknis og forgangsraða bólusetningum fyrstu vikurnar til fólks í áhættuhópum.
Tilkynnt verður síðar hvaða dag bólusetningarnar byrja.
Áhættuhóparnir eru:
Fólk 60 ára og eldra.
Börn milli 6 mánaða og 5 ára aldurs.
Börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Barnshafandi einstaklingar.
Heilbrigðisstarfsfólk sem annast fólk í áhættuhópum.
Fólk sem telst í áhættu á samsmiti inflúensu og fuglainflúensu vegna starfs síns, samkvæmt skilgreiningu sóttvarnalæknis.
Fólk í áhættuhópum greiðir ekki fyrir bólusetningu.
Öðrum boðin bólusetning í nóvember
Eftir að átak hefur verið gert í að bólusetja fólk í áhættuhópum verður öðrum boðið upp á að koma á heilsugæslustöðvar og þiggja bólusetningu.
Búast má við því að það verði í nóvember en tilkynnt verður um nákvæma tímasetningu síðar.
Fólk sem ekki er í áhættuhópum greiðir ekki hefðbundið komugjald á heilsugæslustöð en greiðir fyrir bóluefnið samkvæmt gjaldskrá.
Nánari upplýsingar
Allar frekari upplýsingar um árlegar bólusetningar við inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.
