Fjörður – Tímabundinn flutningur
Húsnæði Heilsugæslunnar Fjarðar verður lokað tímabundið vegna endurnýjunar lyftu frá 8. apríl 2026. Starfsfólk stöðvarinnar veitir skjólstæðingum áfram þjónustu á öðrum starfsstöðvum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á meðan framkvæmdum stendur. Við biðjumst afsökunar á raskinu og óþægindum sem þetta veldur.
Þjónusta stöðvarinnar verður veitt á þremur stöðum þar til við opnum aftur í Firði:
Meðgönguvernd og ung- og smábarnavernd verður staðsett í Heilsugæslunni Sólvangi, Sólvangsvegi 2, 220 Hafnarfirði (sjá kort).
Þjónusta sálfræðinga verður veitt í Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sjá kort).
Öll önnur heilsugæsluþjónusta verður veitt í Heilsugæslunni Efra-Breiðholti, Hraunbergi 6, 111 Reykjavík (sjá kort) milli klukkan 8 og 16 alla virka daga.
Stöðin lokar vegna endurnýjunar á lyftu í húsnæðinu í Firði. Við opnum aftur um leið og vinnu við lyftuna lýkur. Áætluð verklok eru í maí.
Nánari upplýsingar í síma
Við svörum öllum nánari spurningum í síma 513 5400 milli klukkan 8 og 16 alla virka daga.
Ekki hika við að hafa samband ef þið eruð óviss um hvert þið eigið að mæta.
