Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Eftir tilvísun

Upplýsingar fyrir foreldra

Á þessarri síðu eru upplýsingar fyrir foreldra barna sem hefur verið vísað til sálfræðiþjónustu heilsugæslunnar. Þjónusta sálfræðings barna á heilsugæslu felur í sér ráðgjöf, mat og meðferð á vægum til miðlungs alvarlegum tilfinninga- og hegðunarvanda barna og unglinga að 18 ára aldri.

Matslisti

Til að hægt sé að leggja mat á vanda og viðeigandi þjónustu er fyrsta skrefið að fylla út matslistann hér að neðan. Þegar þú ert búin að fylla út matslistann fer sálfræðingur yfir niðurstöður og metur viðeigandi næstu skref.

Hægt er að vista listann í eigin tölvu, fylla út rafrænt, vista og senda í gegnum örugg gagnaskil. Einnig má prenta út listann, fylla út og skila í afgreiðsluna á heilsugæslunni þinni

Örugg gagnaskil (Signet transfer)

Veldu heilsugæslugæsluna þína úr listanum og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum

Næstu skref

Sálfræðingur metur upplýsingar á matslista.Að því loknu er haft samband við foreldra í síma eða með skilaboðum í Heilsuveru til að fara yfir niðurstöður, næstu skref og viðeigandi úrræði.

Virkur biðtími

Það getur verið bið eftir þjónustu sálfræðinga barna í heilsugæslu. Á meðan biðtíma stendur hvetjum við foreldra til að skoða „Bjargráð á biðtíma“ neðar á síðunni, sem inniheldur ýmis úrræði á biðtíma, gagnlegar upplýsingar, fræðslu- og sjálfshjálparefni. Á meðan biðtíma stendur er einnig hægt að hafa samband við heimilislækni.

Haft verður samband þegar komið er að ykkur á biðlistanum.

Í neyðartilfellum

Ef áhyggjur eru af öryggi barns og/eða sjálfsvígshætta er yfirvofandi er bent á:

  • Neyðarlínuna 112

  • Barnaspítala v/Hringbraut, sími 543-1000

  • Bráðamóttöku í Fossvogi, sími 543-2000

  • Barna- og unglingageðdeild Landspítala á dagvinnutíma, sími 543-4300

Bjargráð á biðtíma