Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Þyngdarstjórnunarkerfið

Markmið námskeiðsins er að hjálpa þátttakendum að byggja upp heilbrigða daglega lífshætti sem styðja við eðlilega þyngdarstjórn líkamans.

Stefnt er að því að í lok námskeiðsins hafi hver þátttakandi í höndum bjargráð og þekkingu til að setja sér raunhæf markmið.

Námskeiðið er opið öllum kynjum, 18 ára og eldri.

Efni námskeiðsins

Námskeiðið er fjögur skipti og skiptist í:

1. Þyngdarstjórnunarkerfi líkamans

Fjallað er um hvernig daglegar venjur, mataræði, hreyfing, svefn og andleg líðan vinna saman að heilbrigðum grunni.

  • Hvernig þyngdarstjórnunarkerfi líkamans vinna.

  • Hvernig er hægt að koma betra jafnvægi á mataræði, hreyfingu, svefn og andlega líðan

  • Hvenær verður ofþyngd að sjúkdómnum offitu?

Leiðbeinendur: Íris Dröfn Björnsdóttir og Sigrún Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingar.

2. Andleg líðan og svefn

Tengsl andlegrar heilsu og þyngdarstjórnunar.

  • Bjargráð: Aðferðir til að takast á við streitu og erfiðar tilfinningar.

  • Svefn: Áhrif svefns á líkamann og þyngdarstjórnun, helstu svefnraskanir og ráð við svefnleysi.

Leiðbeinandi: Haraldur Sigurður Þorsteinsson, sálfræðingur.

3. Næring og hreyfing

Hagnýt ráð um fæðuval og hreyfingu við hæfi.

  • Helstu áhrifaþættir og ráðleggingar varðandi fæðuval og hreyfingu.

  • Rýni á eigin mataræði og mat á hvað gæti stutt við heilsusamlegar fæðuvenjur .

  • Leiðir að hreyfingu við hæfi.

Leiðbeinendur: Edda Ýr Guðmundsdóttir og Óla Kallý Magnúsdóttir, næringarfræðingar.

4. Sérhæfð offitumeðferð

Yfirlit yfir lyfjameðferðir og efnaskiptaaðgerðir við offitu. Skoðað er:

  • Hvenær offitumeðferð á við.

  • Hvernig inngripin virka inn í þyngdarstjórnun líkamans.

  • Hvert skal leita ef talið er skynsamlegt að nýta offitumeðferð.

  • Hvernig þarf að vinna með heilbrigðan lífsstíl samhliða inngripum.

  • Hvernig eftirliti skuli háttað.

Leiðbeinendur: Erla Gerður Sveinsdóttir, sérfræðilæknir og Sigrún Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er annað hvort staðnámskeið eða fjarnámskeið:

  • Staðnámskeið er haldið í Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).

  • Fjarnámskeið er í gegnum Teams fjarfundakerfið og eru ætlaðir fólki á landsbyggðinni og þeim sem eiga ekki heimangengt. Fundarboð er sent út 1 til 3 dögum fyrir tímann.

  • Tímalengd námskeiðisins er fjórar vikur

    • Hist er einu sinni í viku.

    • 90 mínútur í hvert skipti.

Kostnaður

  • Þátttakendur greiða 17.206 krónur fyrir námskeiðið.

Nánari upplýsingar

  • Umsjón með námskeiði: Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Hægt er að fá frekari upplýsingar eða tilkynna forföll með tölvupósti á heilsubru@heilsugaeslan.is.