HAM - Streita
Hugræn atferlismeðferð (HAM) er árangursrík leið til að takast á við ýmsan vanda, þar á meðal óhóflega streitu.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
Streituviðbragðið og hvernig streita getur verið eðlilegt og mikilvægt viðbragð, en hvernig langvarandi og óhófleg streita getur valdið líkamlegum og tilfinningalegum einkennum og vanlíðan.
Áhrifarík bjargráð til að takast á við streitu á áhrifaríkan hátt.
Æfingar sem auka streituþol og veita betri innsýn í eigin streituviðbrögð.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er ætlað átján ára og eldri
Námskeiðið felur í sér fræðslu, umræður og heimaverkefni.
Hópnámskeið, hámark fimmtán manns í hverjum hópi.
Tímalengd námskeiðisins er fimm vikur.
Hist er einu sinni í viku, tvo tíma í hvert skipti.
Staðsetning: Þönglabakki 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).
Kostnaður
Þátttakendur greiða 17.206 krónur fyrir námskeiðið.
Nánari upplýsingar
Leiðbeinandi: Auður Ýr Sigurðardóttir, sálfræðingur.
Umsjón með námskeiði: Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Hægt er að fá frekari upplýsingar eða tilkynna forföll með tölvupósti á heilsubru@heilsugaeslan.is.
Næstu námskeið
Hefst 30. apríl 2026
15:00 til 17:00
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík. 2. hæð
Verð: 17.206 kr.
