Skip to main content

The Ísland.is App

Directorate of Health Frontpage
Directorate of Health Frontpage

The Directorate of Health

This news article is more than a year old

15th January 2020

Starfshópur á vegum embættis landlæknis, sem unnið hefur (/servlet/file/store93/item38659/Starfshópur um geðrækt í skólum_skýrsla.LOKA.pdf), hefur skilað niðurstöðum sínum til heilbrigðisráðherra. Tillögur hópsins hafa einnig verið kynntar fyrir mennta- og menningarmálaráðherra og félags- og barnamálaráðherra.

Vinna starfshópsins er liður í geðheilbrigðisstefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda til ársins 2020, en í honum sátu fulltrúar frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, Menntamálastofnun, Kennarasambandi Íslands, Heimili og skóla og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Í vinnu sinni byggði starfshópurinn á stöðu þekkingar á geðrækt og þrepaskiptum stuðningi í skólastarfi (e. multi-tiered systems of support), reynslu annarra þjóða af innleiðingu geðræktarstarfs í skólum, fyrirliggjandi skýrslum og úttektum hér á landi og niðurstöðum nýrrar landskönnunar á geðrækt í íslenskum leik-, grunn- og framhaldsskólum.

Tillögur hópsins telja yfir 40 aðgerðir sem ná bæði til skólakerfisins og annarra kerfa sem sinna velferð barna og ungmenna. Þær hafa mikilvæga snertifleti við þá heildarendurskoðun á málefnum barna sem hafin er í samvinnu þvert á ráðuneyti.

Fyrirspurnum um vinnu hópsins skal beint til Sigrúnar Daníelsdóttur, verkefnastjóra geðræktar: sigrun@landlaeknir.is