Skip to main content

The Ísland.is App

Directorate of Health Frontpage
Directorate of Health Frontpage

The Directorate of Health

This news article is more than a year old

31st January 2020

Dregnir hafa verið út aukavinningar í verkefninu Tóbaks- og rafrettulaus bekkur sem fer fram árlega meðal nemenda í 7., 8., og 9. bekk á landinu. Að þessu sinni duttu tveir bekkir í lukkupottinn, Egilsstaðaskóli 9. FM og Grunnskóli Hornafjarðar 7. Bekkur.

Dregnir hafa verið út aukavinningar í verkefninu Tóbaks- og rafrettulaus bekkur sem fer fram árlega meðal nemenda í 7., 8., og 9. bekk á landinu.

Að þessu sinni duttu tveir bekkir í lukkupottinn, Egilsstaðaskóli 9. FM og Grunnskóli Hornafjarðar 7. Bekkur.

Nemendur vinningsbekkjanna og kennarar þeirra unnu húfur frá 66°Norður.Fleiri eiga möguleika á að vinna.

Annar útdráttur aukavinninga verður 25. mars 2020. Þá verða fleiri bekkir dregnir út sem fá 66°N húfur í verðlaun.

Sendið okkur undirritaðan samning og reglulegar staðfestingar.Við viljum hvetja alla bekki sem ekki hafa sent inn undirritaðan samning til að gera það sem fyrst. Við minnum einnig á að nauðsynlegt er að senda fimm sinnum yfir tímabilið staðfestingarnar á að bekkurinn sé tóbakslaus og rafrettulaus.