Námið
Ef þú ert með almenn ökuréttindi getur þú tekið meiraprófsréttindi á:
fólks- og sendibifreið í atvinnuskyni (B-far)
pallbíl og minni vörubíl (C1)
vörubíl og vagn (CE)
litla rútu og vagn (D1E)
stóra rútu og eftirvagn (DE)
Nánar um réttindaflokkana og aldurstakmörk.
Umsóknarferli
Þú þarft að
skila inn umsókn um nýtt ökuskírteini hjá sýslumanni
velja þér ökukennara
velja þér ökuskóla
Skila þarf inn einu umsóknarblaði til sýslumanns fyrir hver réttindi sem á að taka.
Umsókn skal fylgja:
ljósmynd (ef ekki til í kerfi)
heilbrigðisvottorð
Að þessum skilyrðum fullnægðum sendir sýslumaður námsheimild til Frumherja.
Námsferlið
Bóklegt nám
Bóklega námið fer fram í ökuskólum og skiptist í grunnnám og sérnám.
Grunnnámið felur í sér:
umferðarfræði
umferðarsálfræði
bíltækni
skyndihjálp
Sérnámið fer eftir því hvaða ökutæki er valið.
Að ökunámi loknu færðu heimild til að taka öryggispróf hjá Frumherja. Hægt er skrá sig í öryggispróf á mínum síðum Frumherja.
Verklegt nám
Að loknu öryggisprófi, má hefja verklegt nám hjá ökukennara. Mismunandi er eftir réttindum hversu mörgum verklegum tímum þarf að ljúka.
Að lokum er verklegt próf tekið hjá Frumherja. Það felur í sér:
Taka þarf staðfestingu á öllum verklegum og skriflegum þáttum sem þú hefur þegar lokið, með í verklega prófið.
Fleiri en eitt meirapróf
Aðeins er hægt að taka eitt verklegt meirapróf í einu. Þegar sýslumaður hefur afgreitt það gefur hann út leyfi fyrir næsta. Stundum geta liðið nokkrir dagar á milli prófa.
Ef þú tekur fleira en eitt meirapróf, er hægt er að fá útgefna akstursheimild til bráðabirgða, sem gildir fyrir þá flokka meiraprófs sem þú hefur þegar tekið.
Útgáfa ökuskírteinis
Ef þú stenst prófin og fullnægir skilyrðum til að fá meirapróf, getur þú farið til sýslumanns og fengið útgefið nýtt ökuskírteini. Það gildir fyrir þá flokka ökutækja sem þú hefur nú rétt til að stjórna.
Kostnaður
Kostnaður fer eftir gjaldskrá ökuskóla. Einnig þarf að greiða próftökugjöld hjá Frumherja og kostnað vegna nýs ökuskírteinis hjá sýslumanni, ökuskírteinið kostar 8.600 krónur.
Þjónustuaðili
Sýslumenn