Til umsagnar
20.10.–3.11.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-214/2026
Birt: 20.10.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Húsnæðis- og skipulagsmál
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um mannvirki.
Markmið frumvarpsins er að einfalda regluverk og stjórnsýslu mannvirkjamála, skýra ábyrgð þeirra sem koma að mannvirkjagerð, gera byggingareftirlit markvisst og áhættumiðað. Þá er frumvarpinu ætlað að straumlínulaga og samþætta ferla og bæta upplýsingagjöf með starfrænum umsóknum og umsýslu í mannvirkjaskrá HMS. Markmið breytinganna er því að fækka byggingargöllum og styrkja neytendavernd.
Lagt er til að mannvirkjum verði skipt í þrjá áhættuflokka og að leyfisskylda og umfang eftirlits taki mið af þeirri flokkun. Mannvirki í áhættuflokki A verði undanþegin byggingarleyfi en skráningarskyld. Mannvirki í áhættuflokki B verði byggingarleyfisskyld og háð innra eftirliti hönnuða og iðnmeistara. Mannvirki í áhættuflokki C verði byggingarleyfisskyld og háð bæði innra og ytra eftirliti. Flokkunin verði nánar útfærð í reglugerð.
Byggingarstjórakerfið verði lagt niður og ábyrgð verkeigenda, hönnuða og iðnmeistara skýrð. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) beri ábyrgð á áhættumiðuðu ytra eftirliti með mannvirkjum í áhættuflokki C fram að öryggisúttekt og geti falið skoðunarstofum sem fengið hafa starfsleyfi stofnunarinnar framkvæmd þess. Gerðar verði sérstakar kröfur um óhæði skoðunarstofa, hæfni starfsmanna og gæðastjórnunarkerfi þeirra. Byggingarfulltrúar annist áfram útgáfu byggingarleyfa, lokaúttektir, eftirlit frá öryggisúttekt að lokaúttekt og beitingu þvingunarúrræða þegar við á. Þá sinni byggingarfulltrúar einnig eftirliti með þegar byggðum mannvirkjum.
Til að styrkja neytendavernd er lagt til að lögfest verði notkunareftirlit með íbúðarhúsnæði í áhættuflokki C sem fari fram annars vegar einu ári og hins vegar fimm árum eftir öryggisúttekt. Tilgangur eftirlitsins er að greina tímanlega frávik í mikilvægum byggingarhlutum og kerfum og fyrirbyggja tjón. Þá verði umsóknir, leyfisveitingar og gögn um eftirlit varðveitt í rafrænni mannvirkjaskrá HMS.
Samhliða eru lagðar til breytingar á lögum um brunavarnir, meðal annars um áhættumiðað eldvarnaeftirlit, starfsleyfi ábyrgðarmanna vegna heitrar vinnu á byggingarstað og kröfur til þjónustuaðila brunavarna.
Óskað er eftir umsögnum um frumvarpsdrögin.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa húsnæðis- og skipulagsmála
frn@frn.is