Til umsagnar
19.10.–2.11.2026
Í vinnslu
3.11.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-211/2026
Birt: 19.10.2026
Fjöldi umsagna: 4
Drög að reglugerð
Forsætisráðuneytið
Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Drög að reglugerð um störf nefndar til að kanna aðbúnað barna sem vistuð voru fyrir atbeina stjórnvalda á einkaheimilum.
Lög um skipan nefndar til að kanna aðbúnað barna sem vistuð voru fyrir atbeina stjórnvalda á einkaheimilum nr. 80/2026 voru samþykkt á Alþingi í júní 2026. Nefndin var síðan skipuð í ágústmánuði, sjá https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-08-14-.
Síðan þá hefur verið unnið að því að finna nefndinni húsnæði, ráða starfsmann og ákveða hvernig upplýsingatæknimálum nefndarinnar verður háttað. Erindisbréf nefndar er í undirbúningi. Áður en nefndin tekur formlega til starfa þarf að setja reglugerð sem hér er kynnt til samráðs.
Í drögunum að reglugerð er m.a. fjallað um gagnaöflun nefndarinnar, skýrslutöku, varðveislu gagna og upplýsingaöryggi. Þá eru þar ákvæði um stuðning við þá sem gefa skýrslu fyrir nefndinni, birtingu niðurstaðna og þagnarskyldu.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stjórnskipunar
for@for.is