Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 16.–27.10.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-208/2026

Birt: 16.10.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að reglugerð

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Orkumál

Endurskoðuð drög að reglugerð um framkvæmd 20. gr. a–20. gr. i raforkulaga nr. 65/2003

Málsefni

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir að nýju til samráðs endurskoðuð drög að reglugerð um framkvæmd 20. gr. a–20. gr. i raforkulaga nr. 65/2003.

Nánari upplýsingar

Reglugerðardrögin eru sett fram í kjölfar breytinga á raforkulögum með lögum nr. 45/2026, þar sem lögfest voru nánari ákvæði um gagnsæi og háttsemi á heildsöluorkumarkaði raforku.

Reglugerðin tekur til framkvæmdar 20. gr. a–20. gr. i raforkulaga nr. 65/2003. Í drögunum er meðal annars fjallað um opinbera birtingu innherjaupplýsinga og frestun birtingar þeirra, viðurkennda markaðsframkvæmd, gagnaskil til Raforkueftirlitsins, fyrirbyggingu og greiningu markaðssvika, tilkynningar um grunsamleg viðskipti og eftirlit Raforkueftirlitsins.

Fyrri drög voru kynnt í Samráðsgátt í júlí og ágúst 2026. Í kjölfar samráðsins voru umsagnir og athugasemdir hagaðila teknar til yfirferðar og hefur uppbygging og efni reglugerðardraganna verið endurskoðað verulega. Meðal annars hefur verið leitast við að einfalda reglurnar, skýra betur lagastoð einstakra skyldna, draga úr tvíverknaði við upplýsingagjöf og færa tæknilega útfærslu að meira leyti í leiðbeiningar Raforkueftirlitsins.

Ákvæði um viðurkennda markaðsframkvæmd hafa verið endurskoðuð. Í drögunum er nú byggt á því að markaðsaðili sem byggir á 20. gr. f raforkulaga beri ábyrgð á að meta og geta sýnt fram á að háttsemi hans byggist á lögmætum ástæðum sem samræmast viðurkenndri markaðsframkvæmd. Raforkueftirlitið metur við framkvæmd eftirlits hvort skilyrði ákvæðisins séu uppfyllt og getur jafnframt birt almennar leiðbeiningar um þau sjónarmið sem það leggur til grundvallar við slíkt mat.

Sérstakur kafli reglugerðarinnar fjallar um gagnaskil til Raforkueftirlitsins. Þar er annars vegar nánar kveðið á um gagnaskil samkvæmt 20. gr. i raforkulaga, þar á meðal upplýsingar úr pöntunarbók og upplýsingar um útsetta áhættu markaðsaðila. Hins vegar er fjallað sérstaklega um heimildir Raforkueftirlitsins samkvæmt 25. gr. raforkulaga til að krefjast reglubundinnar eða frekari upplýsingagjafar þegar slíkar upplýsingar eru nauðsynlegar vegna eftirlits. Við slíka upplýsingagjöf skal gæta meðalhófs og eftir því sem unnt er nýta upplýsingar sem þegar hafa verið veittar þannig að forðast megi óþarfa tvískil.

Jafnframt er í drögunum gert ráð fyrir að Raforkueftirlitið setji nánari leiðbeiningar um tæknilega framkvæmd gagnaskila. Þannig er leitast við að halda efnislegum skyldum skýrum í reglugerðinni en tryggja jafnframt svigrúm til að aðlaga tæknilegt fyrirkomulag gagnaskila að þróun markaðar og upplýsingakerfa.

Í reglugerðardrögunum er einnig fjallað um skyldur viðskiptavettvanga raforku og milligönguaðila í raforkuviðskiptum til að koma á fyrirkomulagi, kerfum og verkferlum sem miða að því að fyrirbyggja og greina innherjasvik, ólögmæta miðlun innherjaupplýsinga, markaðsmisnotkun og tilraunir til slíkrar háttsemi. Umfang og útfærsla slíks fyrirkomulags skal taka mið af gerð, stærð, umfangi og áhættu í starfsemi viðkomandi aðila. Þá er kveðið á um tilkynningarskyldu viðskiptavettvanga og milligönguaðila þegar rökstuddur grunur vaknar um möguleg brot.

Auk lögbundinnar tilkynningarskyldu er gert ráð fyrir að Raforkueftirlitið haldi úti öruggri leið til að taka við ábendingum um möguleg brot og meti hvort tilefni sé til frekari athugunar eða eftirfylgni.

Að lokum er í reglugerðardrögunum fjallað um eftirlit Raforkueftirlitsins, eftirlitsheimildir, úrræði, viðurlög, birtingu ákvarðana og meðferð og öryggi gagna.

Gert er ráð fyrir að reglugerðin taki gildi 1. janúar 2027. Einnig er gert ráð fyrir að framkvæmd reglugerðarinnar verði endurskoðuð eigi síðar en þremur árum frá gildistöku hennar.

Þar sem reglugerðardrögin hafa tekið verulegum breytingum frá fyrra samráði er sérstaklega óskað eftir sjónarmiðum hagaðila um endurskoðuð drög.

Óskað er eftir því að athugasemdir berist eigi síðar en 27. október 2026.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (2)

Umsjónaraðili

Skrifstofa orkumála

urn@urn.is